Kominn til Moskvu

Úkraína | 13. mars 2025

Kominn til Moskvu

Steve Witkoff sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar kom í dag til rússnesku höfuðborgarinnar Moskvu í þeim erindagjörðum að kynna þar áætlun Bandaríkjamanna um 30 daga vopnahlé á Úkraínustríðinu, hefur AFP-fréttastofan eftir heimildarmanni þar um og fylgdi sögunni að rússnesk stjórnvöld hefðu varað eindregið við „skyndisamkomulagi“ er gæfi þeim úkraínsku hvíldartíma frá vörnum lands síns.

Kominn til Moskvu

Úkraína | 13. mars 2025

Steve Witkoff ræðir við fréttamenn ásamt Karoline Leavitt við vesturálmu …
Steve Witkoff ræðir við fréttamenn ásamt Karoline Leavitt við vesturálmu Hvíta hússins í síðustu viku. AFP/Mandel Nguan

Steve Wit­koff sendi­full­trúi Banda­ríkja­stjórn­ar kom í dag til rúss­nesku höfuðborg­ar­inn­ar Moskvu í þeim er­inda­gjörðum að kynna þar áætl­un Banda­ríkja­manna um 30 daga vopna­hlé á Úkraínu­stríðinu, hef­ur AFP-frétta­stof­an eft­ir heim­ild­ar­manni þar um og fylgdi sög­unni að rúss­nesk stjórn­völd hefðu varað ein­dregið við „skyndi­sam­komu­lagi“ er gæfi þeim úkraínsku hvíld­ar­tíma frá vörn­um lands síns.

Hafa stjórn­ar­herr­arn­ir í Úkraínu þegar samþykkt áætl­un­ina – hlaut hún samþykki þeirra á fundi með full­trú­um Banda­ríkj­anna í Sádi-Ar­ab­íu á þriðju­dag­inn, en Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hef­ur eggjað hlutaðeig­end­ur mjög til að ná sam­komu­lagi um enda­lok þriggja ára átaka Rúss­lands og Úkraínu.

Rúss­ar krefjast hlut­ar síns

Að sögn eins aðstoðarmanna Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta krefjast Rúss­ar þess að áætl­un­in geri ráð fyr­ir stöðu Rúss­lands í mál­inu, það sem rætt var á þriðju­dag­inn snúi ein­göngu að Úkraínu.

„Nauðsyn­legt er að skoða áætl­un­ina, hugsa hana og taka okk­ar stöðu með,“ sagði Júrí Úsja­kov, sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­un­um árin 1998 til 2008 og nú ráðgjafi rúss­neskra stjórn­valda í ut­an­rík­is­mál­um, í sam­tali við rúss­neska rík­is­sjón­varps­stöð og kvað lík­legt að Trump legði fram sitt álit að þeirri end­ur­skoðun lok­inni.

Hef­ur Trump látið í ljós bjart­sýni á að sendi­nefnd hans nái að koma sam­komu­lagi um vopna­hlé í höfn þrátt fyr­ir að Rúss­ar hafi und­an­farið sótt í sig veðrið við víg­lín­una.

„Auðnist okk­ur að fá Rússa til að vægja höf­um við náð fram vopna­hléi. Ég ef­ast um að þaðan verði aft­ur snúið í átök,“ sagði for­set­inn í gær.

mbl.is