Svarar Trump: „Nóg komið“

Svarar Trump: „Nóg komið“

Múte B. Egede, fráfarandi formaður landsstjórnar Grænlands, segir að hann muni boða til fundar með flokksleiðtogum til að hafna hugmyndum Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að taka yfir eyjuna. Egede segir að nú sé „nóg komið“.

Svarar Trump: „Nóg komið“

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 13. mars 2025

Múte Egede vill leiðtoga landsins á sinn fund.
Múte Egede vill leiðtoga landsins á sinn fund. AFP

Múte B. Egede, frá­far­andi formaður lands­stjórn­ar Græn­lands, seg­ir að hann muni boða til fund­ar með flokks­leiðtog­um til að hafna hug­mynd­um Don­alds Trump Banda­ríkja­for­seta um að taka yfir eyj­una. Egede seg­ir að nú sé „nóg komið“.

Múte B. Egede, frá­far­andi formaður lands­stjórn­ar Græn­lands, seg­ir að hann muni boða til fund­ar með flokks­leiðtog­um til að hafna hug­mynd­um Don­alds Trump Banda­ríkja­for­seta um að taka yfir eyj­una. Egede seg­ir að nú sé „nóg komið“.

„Að þessu sinni þurf­um við að herða af­stöðu okk­ar gagn­vart Trump. Fólk get­ur ekki haldið áfram að van­v­irða okk­ur,“ skrifaði Egede á Face­book, eft­ir að Trump ít­rekaði fyrr í dag löng­un sína til að inn­lima Græn­land.

Egede held­ur áfram um stjórn­artaum­ana á meðan unnið er að mynd­un nýrr­ar rík­is­stjórn­ar í kjöl­far ósig­urs flokks hans í kosn­ing­um á þriðju­dag.

Mark Rutte og Trump í Hvíta húsinu í dag.
Mark Rutte og Trump í Hvíta hús­inu í dag. AFP

Óásætt­an­legt

„Banda­ríkja­for­seti hef­ur enn einu sinni viðrað hug­mynd­ina um að inn­lima okk­ur. Ég get alls ekki sætt mig við það,“ skrifaði hann.

„Ég virði niður­stöðu kosn­ing­anna, en ég tel að ég hafi skyldu sem starf­andi formaður. Ég hef því beðið stjórn­sýsl­una um að boða flokks­leiðtoga til fund­ar eins fljótt og auðið er.“

Trump bjart­sýnn

„Ég held að það muni ger­ast,“ sagði Trump spurður út í framtíð Græ­l­ands þegar hann ræddi við blaðamenn í Hvíta hús­inu í dag eft­ir sam­eig­in­leg­an fund með Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóra NATO.

Rutte var einnig spurður út í málið en hann neitaði að tjá sig.

mbl.is