Leggur til hert skilyrði til strandveiða

Strandveiðar | 14. mars 2025

Leggur til hert skilyrði til strandveiða

Birt hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingum á reglugerð um strandveiðar. Í reglugerðardrögunum er gert ráð fyrir að sett verði tímamörk fyrir umsókn um strandveiðileyfi, settar strangari takmarkanir á eignarhald báta með strandveiðileyfi og skýrari ákvæði um skyldu strandveiðisjómanna til að skila stafrænum aflaupplýsingum.

Leggur til hert skilyrði til strandveiða

Strandveiðar | 14. mars 2025

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur birt reglugerðardrög í samráðsgátt stjórnvalda …
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur birt reglugerðardrög í samráðsgátt stjórnvalda sem herða skilyrði til veiða. mbl.is/Karítas

Birt hafa verið í sam­ráðsgátt stjórn­valda drög að breyt­ing­um á reglu­gerð um strand­veiðar. Í reglu­gerðardrög­un­um er gert ráð fyr­ir að sett verði tíma­mörk fyr­ir um­sókn um strand­veiðileyfi, sett­ar strang­ari tak­mark­an­ir á eign­ar­hald báta með strand­veiðileyfi og skýr­ari ákvæði um skyldu strand­veiðisjó­manna til að skila sta­f­ræn­um af­la­upp­lýs­ing­um.

Birt hafa verið í sam­ráðsgátt stjórn­valda drög að breyt­ing­um á reglu­gerð um strand­veiðar. Í reglu­gerðardrög­un­um er gert ráð fyr­ir að sett verði tíma­mörk fyr­ir um­sókn um strand­veiðileyfi, sett­ar strang­ari tak­mark­an­ir á eign­ar­hald báta með strand­veiðileyfi og skýr­ari ákvæði um skyldu strand­veiðisjó­manna til að skila sta­f­ræn­um af­la­upp­lýs­ing­um.

Hanna Katrín Friðriks­son at­vinnu­vegaráðherra greindi frá því fyrr í vik­unni að ekki væri út­lit fyr­ir að tæk­ist að af­greiða frum­varp um breyt­ing­ar á lög­um sem myndi tryggja öll­um strand­veiðibát­um 48 veiðidaga nú í sum­ar líkt og rík­is­stjórn­in hafði boðað. Þess í stað boðaði hún reglu­gerðarbreyt­ing­ar sem ættu að miða að því að tryggja bát­un­um þenn­an fjölda veiðidaga.

Ekki fylg­ir reglu­gerðardrög­un­um grein­ar­gerð sem út­skýr­ir hvernig um­rædd­ar breyt­ing­ar leiði til þess að meiri lík­ur séu á að öll­um strand­veiðibát­um verði tryggðir 48 veiðidag­ar á strand­veiðitíma­bili sum­ars­ins sem hefst 5. maí. Ætla má að hert skil­yrði kann að draga úr aðsókn og hamla þannig hve marg­ir bát­ar verði á strand­veiðum.

Til­færsl­ur afla­heim­ilda?

Í grein­ar­gerð reglu­gerðardrag­anna er þó boðað að einnig standi til að leggja til „breyt­ing­ar á reglu­gerð um veiðar í at­vinnu­skyni á fisk­veiðiár­inu 2024/​2025 og almanaks­ár­inu 2025 er varðar það magn sem ráðstafað verður til strand­veiða.“

Bú­ast má við því að þar verði gerðar til­færsl­ur til að auka afla­heim­ild­ir sem strand­veiðum er ráðstafað. Verður lík­lega bætt við þeim þorskkvóta sem ríkið hef­ur fengið í skipt­um á til­boðsmarkaði, en ekki ligg­ur fyrri hvort gengið verður á aðrar heim­ild­ir.

Þeir sem gagn­rýnt hafa áform rík­is­stjórn­ar­inn­ar um að tryggja öll­um bát­um 48 veiðidaga telja ekki hægt að standa við gef­in fyr­ir­heit nema með stór­felldri aukn­ingu í veiðiheim­ild­um til strand­veiða, sem tekn­ar yrðu af öðrum út­gerðum.

Þessu hafa tals­menn strand­veiðisjó­manna  hafnað og sagt aðeins muna um nokk­ur þúsund tonn um­fram þau 11 þúsund sem veiðunum var ráðstafað á síðasta ári til að tryggja öll­um bát­um 12 veiðidaga í hverj­um mánuði maí til ág­úst.

Auka fyr­ir­sjá­an­leika

Í reglu­gerðardrög­un­um sem nú eru til um­sagn­ar í sam­ráðsgátt til 20. mars er lagt til að „skylt verði að sækja um leyfi til strand­veiða fyr­ir til­tekið tíma­mark, en fram­kvæmd­in hef­ur verið að heim­ilt hef­ur verið að sækja um eft­ir að strand­veiðitíma­bil hefst,“ seg­ir í grein­ar­gerð drag­anna.

Lagt er til að um­sókn­ar­frest­ur fyr­ir strand­veiðileyfi verði 15. apríl og að ekki verði heim­ilt að sækja um leyfi eft­ir þann dag. Hins veg­ar verður leyfi­legt að til­greina upp­hafs­dag strand­veiða. „Verði breyt­ing­in staðfest mun fjöldi báta sem stund­ar strand­veiðar liggja fyr­ir áður en strand­veiðitíma­bilið hefst. Mun þetta fela í sér auk­inn fyr­ir­sjá­an­leika og ein­föld­un í fram­kvæmd.“

Jafn­framt er lagt til að sá sem rær á grund­velli strand­veiðileyf­is þurfi að vera eig­andi meiri­hluta í bátn­um sem gerður er út, það er að segja meira en 50%.

Að lok­um er lagt til að skip­stjór­um strand­veiðibáta verði skylt að skila sta­f­rænt til Fiski­stofu upp­lýs­ing­ar um afla áður en báti er lagt við bryggju.

mbl.is