Ekki alveg rétti tíminn til að fækka úrræðum

Ekki alveg rétti tíminn til að fækka úrræðum

Mennta- og barnamálaráðherra segir að Blönduhlíð í Mosfellsbæ, þar sem til stóð að meðferðarheimili yrði opnað í desember síðastliðnum, verði nýtt fyrir einhvers konar úrræði.

Ekki alveg rétti tíminn til að fækka úrræðum

Neyðarástand í málefnum barna | 17. mars 2025

Ráðherra segir að húsnæðið verði nýtt fljótlega fyrir eitthvað úrræði.
Ráðherra segir að húsnæðið verði nýtt fljótlega fyrir eitthvað úrræði. Samsett mynd

Mennta- og barnamálaráðherra segir að Blönduhlíð í Mosfellsbæ, þar sem til stóð að meðferðarheimili yrði opnað í desember síðastliðnum, verði nýtt fyrir einhvers konar úrræði.

Mennta- og barnamálaráðherra segir að Blönduhlíð í Mosfellsbæ, þar sem til stóð að meðferðarheimili yrði opnað í desember síðastliðnum, verði nýtt fyrir einhvers konar úrræði.

Verið sé að vinna í húsnæðinu og það verði hægt að nýta það mjög fljótlega.

Þetta kom fram í svari Ásthildar Lóu Þórsdóttur, mennta- og barnamálaráðherra, við fyrirspurn Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Greint frá leiguverðinu á mbl.is í febrúar

Greint var frá því á mbl.is þann 11. febrúar síðastliðinn að Barna- og fjölskyldustofa greiddi 750 þúsund krónur á mánuði í leigu fyrir Blönduhlíð, þrátt fyrir að ekkert meðferðarheimili væri starfrækt þar. Og að stofnunin greiddi jafnframt 1,8 milljónir króna í leigu fyrir rými á Vogi þar sem meðferðarheimilið er nú tímabundið starfrækt.

Líkt og ítrekað hefur komið fram í umfjöllun mbl.is um málið þá stóðst húsnæðið í Blönduhlíð ekki brunaúttekt, þrátt fyrir endurbætur. Því brá Barna- og fjölskyldustofa á það ráð að leiga rýmið á Vogi fyrir starfsemina, en sá leigusamningur gildir til áramóta. 

Þá hefur verið greint frá því á mbl.is að ólíklegt þyki að í Blönduhlíð verði nokkurn tíma rekið meðferðarheimili. En það húsnæði hefur staðið autt í einhverja mánuði.

Ekki rétti tíminn til að fækka úrræðum

Spurði Bergþór út í það hvernig málið stæði hjá ráðherra.

Sagði Ásthildur að alltaf hefði staðið til að nýta húsið, upp hefðu komið spurningar um brunavarnir.

„En þetta var kannski ekki alveg, hefur ekki verið rétti tíminn, svo það sé nú sagt, á undanförnum vikum að fækka úrræðum þó að eitthvað hafi staðið í að hægt sé að nýta þau sem var gert ráð fyrir að væri hægt að nota, þannig að þetta úrræði verður nýtt, vissulega,“ sagði Ásthildur í svari sínu.

Líkt og mbl.is hefur greint frá þá ákvað starfsfólk Barna- og fjölskyldustofu að fara sjálft í endurbætur á húsnæðinu í stað þess að fara útboð, til að bregðast hratt við úrræðaleysi.

Starfsfólkið vissi hins vegar ekki að meðferðarheimili, þar sem fólk er inn­ritað og út­skrifað, félli í notkunarflokk 5 samkvæmt byggingarreglugerð. Taldi starfsfólkið að heimilið ætti heima í notkunarflokki 3. Og var það ekki kannað áður en ráðist var í end­ur­bæt­ur á hús­næðinu. Töluvert rík­ari kröf­ur eru gerðar um bruna­varn­ir í mann­virkj­um í notkunarflokki 5 en í flokki 3. 

mbl.is