Fanney og Teitur eiga von á þriðja barninu

Frægar fjölskyldur | 17. mars 2025

Fanney Ingvarsdóttir, markaðsfulltrúi BIOEFFECT og áhrifavaldur, og eiginmaður hennar Teitur Páll Reynisson, viðskiptafræðingur í fjármáladeild Landsbankans, eiga von á þriðja barninu á árinu. Fyrir eiga þau sjö ára dóttur og fjögurra ára son. Hjónin deildu gleðifréttunum á Instagram.

Það er bjart fram undan hjá Fanneyju og Teiti!
Það er bjart fram undan hjá Fanneyju og Teiti! Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir

Fanney Ingvarsdóttir, markaðsfulltrúi BIOEFFECT og áhrifavaldur, og eiginmaður hennar Teitur Páll Reynisson, viðskiptafræðingur í fjármáladeild Landsbankans, eiga von á þriðja barninu á árinu. Fyrir eiga þau sjö ára dóttur og fjögurra ára son. Hjónin deildu gleðifréttunum á Instagram.

Fanney Ingvarsdóttir, markaðsfulltrúi BIOEFFECT og áhrifavaldur, og eiginmaður hennar Teitur Páll Reynisson, viðskiptafræðingur í fjármáladeild Landsbankans, eiga von á þriðja barninu á árinu. Fyrir eiga þau sjö ára dóttur og fjögurra ára son. Hjónin deildu gleðifréttunum á Instagram.

„Þriðji gullmolinn okkar á leiðinni,“ skrifar hún undir færsluna og sýnir myndskeið þar sem foreldrarnir tilkynna börnunum tveimur að það þriðja sé á leiðinni. 

Allt í gangi!

Fanney og Teitur giftu sig á síðasta ári. Það er einnig stutt síðan Fanney tilkynnti á Instagram að hjónin hefðu fest kaup á eign svo það er ýmislegt á döfinni hjá fjölskyldunni.

mbl.is