Ríkisstjórnin hefur samþykkt frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um sameinað embætti sýslumanns.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins en þar segir að markmiðin með sameiningunni séu skýr um framfarir, hagræðingu og að efla byggðir landsins.
Með frumvarpinu er skýrt kveðið á um meginhlutverk sýslumanns, sem er nýmæli, um að stuðla að jöfnu aðgengi að þjónustu óháð búsetu þannig að skipulag þjónustunnar taki mið af þörfum íbúa fyrir staðbundna þjónustu.
Jafnframt er nýmæli að kveða skýrt á um hlutverk sýslumanns að standa vörð um starfsemi embættisins á landsbyggðinni með það að markmiði að fjölga verkefnum og störfum þar.
„Þetta er eitt af þessum málum sem mikið hefur verið rætt um en aldrei verið klárað. Þessi ríkisstjórn er í verkstjórn og við ætlum afgreiða þetta mál. Sameinað embætti sýslumanns verður öflugt með 27 starfsstöðvar um landið allt. Þetta er ekki síður byggðamál en hagræðingarmál,“ er haft eftir dómsmálaráðherra í tilkynningunni.