Séríslenskar reglur hamli lengri föstum vöxtum

Vextir á Íslandi | 17. mars 2025

Séríslenskar reglur hamli lengri föstum vöxtum

„Uppgreiðslugjöld á Íslandi eru mun óhagstæðari en í nágrannalöndunum og mun meira íþyngjandi en tilskipun ESB mælir fyrir. Séríslenskar reglur draga úr hvata banka til að bjóða lán með föstum vöxtum til lengri tíma. Þetta takmarkar valkosti neytenda og eykur óvissu í greiðslubyrði.“ Þetta er meðal niðurstaðna í nýrri skýrslu sem dr. Jón Helgi Egilsson hagfræðingur vann fyrir fjármálaráðuneytið og birt var fyrr í þessum mánuði.

Séríslenskar reglur hamli lengri föstum vöxtum

Vextir á Íslandi | 17. mars 2025

Séríslenskar reglur draga úr hvata banka til að bjóða lán …
Séríslenskar reglur draga úr hvata banka til að bjóða lán með föstum vöxtum til lengri tíma að mati Jóns Helga. mbl.is/Árni Sæberg

„Uppgreiðslugjöld á Íslandi eru mun óhagstæðari en í nágrannalöndunum og mun meira íþyngjandi en tilskipun ESB mælir fyrir. Séríslenskar reglur draga úr hvata banka til að bjóða lán með föstum vöxtum til lengri tíma. Þetta takmarkar valkosti neytenda og eykur óvissu í greiðslubyrði.“ Þetta er meðal niðurstaðna í nýrri skýrslu sem dr. Jón Helgi Egilsson hagfræðingur vann fyrir fjármálaráðuneytið og birt var fyrr í þessum mánuði.

„Uppgreiðslugjöld á Íslandi eru mun óhagstæðari en í nágrannalöndunum og mun meira íþyngjandi en tilskipun ESB mælir fyrir. Séríslenskar reglur draga úr hvata banka til að bjóða lán með föstum vöxtum til lengri tíma. Þetta takmarkar valkosti neytenda og eykur óvissu í greiðslubyrði.“ Þetta er meðal niðurstaðna í nýrri skýrslu sem dr. Jón Helgi Egilsson hagfræðingur vann fyrir fjármálaráðuneytið og birt var fyrr í þessum mánuði.

Fjármálaráðherra tekur jákvætt í sumar hugmyndirnar, en tekur fyrir að ríkið taki á sig aukna áhættu með þátttöku á vaxtaskiptamarkaði.

Jón Helgi vann skýrsluna að beiðni Sigurðar Inga Jóhannssonar, þáverandi fjármálaráðherra, en hún er um húsnæðislánamarkaðinn hér á landi og hvað megi betur fara, sérstaklega um löng óverðtryggð lán og hvernig megi tryggja fasta slíka vexti til langs tíma til að draga úr óvissu og tryggja heimilum stöðugleika í greiðslubyrði, en líka um hvernig draga megi úr vægi verðtryggingar.

Ólíkar fjármögnunarleiðir skapi óhagkvæmni

Í samantekt skýrslunnar vísar Jón Helgi meðal annars til þess að á evrusvæðinu sé talsverður innbyrðis vaxtamunur sem sýni mikilvægi innlends regluverks og markaðar. Hér á landi segir hann sérreglur draga úr þeim hvata að lengri föst óverðtryggð lán séu í boði og að ólíkar fjármögnunarleiðir fyrir verðtryggð og óverðtryggð lán skapi óhagkvæmni og geti leitt til lakari kjara fyrir lántakendur.

Leggur Jón Helgi til að íslensk stjórnvöld endurskoði lög með það fyrir augum að auka hvata bankanna til að bjóða lán með föstum vöxtum til lengri tíma. Jafnfram bendir hann á að til að bankar kjósi að bjóða lán með föstum vöxtum til langs tíma þurfi að lágmarka vaxtaáhættu.

Ýtt verði undir vaxtaskiptamarkað

Úr slíku sé hægt að bæta með notkun vaxtaskiptasamninga og telur Jón Helgi allar forsendur til staðar til að nýta þá. Segir hann banka í nágrannalöndum nýta slíka samninga til að lágmarka vaxtaáhættu sína og það auðveldi þeim að bjóða vexti til langs tíma.

Leggur Jón Helgi til að stjórnvöld stuðli markvisst að þróun vaxtaskiptamarkaðar með aukinni kynningu, fræðslu, samtali og virkri þátttöku ríkissjóðs í slíkum samningum til að bæta áhættustýringu og framboð lána með föstum vöxtum til langs tíma.

Skýr markmið um að drag úr verðtryggðum lánum

Kemst hann jafnframt að þeirri niðurstöðu að tvískiptur markaður með bæði verðtryggð og óverðtryggð lán dragi úr skilvirkni peningastefnunnar með því að milda áhrif vaxtabreytinga og stuðli að meiri sveiflum á fasteignalánamarkaði. Leggur hann aftur til að styrkja vaxtaskiptamarkað en jafnframt að afnema hámark uppgreiðslugjalds og styrkja markað fyrir sértryggð skuldabréf sem draga eigi úr vægi verðtryggðra fasteignalána.

Auk fyrrnefndra atriða leggur Jón Helgi til að ríkið setji skýr markmið um hlutfallslega minnkuð verðtryggðra lána í lánakerfinu. Telur hann að með þessum aðgerðum verði hægt að bæta fjármögnunarskilyrði íslenskra húsnæðislána, draga úr vægi verðtryggingar, auka stöðugleika á markaði og tryggja neytendum betri lánskjör til lengri tíma.

Ráðherra: Ætla ekki að taka á sig áhættu á vaxtaskiptamarkaði

Eftir að ný ríkisstjórn tók við lagði Sigurður Ingi fram þá fyrirspurn á þingi hvort birta ætti skýrsluna. Svaraði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra skriflega á þingi í dag og vísaði í að skýrslan hefði verið birt. Í svarinu kemur fram að ráðherra líti sumt jákvæðum augum í skýrslunni, en hafnar alfarið að ríkið taki þátt í vaxtaskiptasamningum og vísar til reynslunnar af lánveitingum Íbúðalánasjoðs. Kostar uppgjör sjóðsins fleiri hundruð milljarða króna.

Samkvæmt stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er það fyrsta verk hennar að ná stöðugleika í efnahagslífi og lækkun vaxta, m.a. með stöðugleikareglu og stöðvun hallareksturs ríkisins. Með auknum trúverðugleika hagstjórnarinnar og lækkun verðbólgu næst stöðugleiki sem stuðlar að því að lækka bæði óverðtryggða og verðtryggða vexti, jafnt til skamms sem langs tíma. Traust hagstjórn er þannig mikilvægasta forsenda þess að bæta kjör íbúðalána.

Eftir atvikum kunna að koma fram, svo sem í þeirri skýrslu sem fyrirspurnin lýtur að, tillögur annars eðlis sem t.d. snúa beint að húsnæðismarkaðnum. Ráðherra lítur opnum hug hugmyndir sem kunna að koma fram í umræðunni um að bæta kjör neytenda á lánamarkaði, að því marki sem þær eru skynsamlegar og samrýmast ábyrgri stjórn ríkisfjármála og efnahagsmála. Ráðuneytið hyggst t.d. skoða hvort tækifæri séu til þess að auka framboð húsnæðislána með breytingum á ákvæðum laga um fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða. Ráðherra telur það hins vegar ekki koma til greina að ríkissjóður taki í auknum mæli á sig vaxtaáhættu vegna íbúðalána með því að gerast mótaðili í vaxtaskiptasamningum við bankana eins og vakið er máls á í skýrslunni. Reynslan, ekki síst af skuldabréfaútgáfu og lánveitingum Íbúðalánasjóðs, sýnir að slíkar ákvarðanir geta verið áhættusamar og á endanum mjög kostnaðarsamar fyrir samfélagið,“ segir í svari ráðherra.

mbl.is