Skref stigin í átt að nýju fangelsi

Fangelsismál | 17. mars 2025

Skref stigin í átt að nýju fangelsi

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir að í dómsmálaráðuneytinu sé verið að stíga skref sem miði að því að nýtt fangelsi verði byggt.

Skref stigin í átt að nýju fangelsi

Fangelsismál | 17. mars 2025

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir dóms­málaráðherra seg­ir að í dóms­málaráðuneyt­inu sé verið að stíga skref sem miði að því að nýtt fang­elsi verði byggt.

Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir dóms­málaráðherra seg­ir að í dóms­málaráðuneyt­inu sé verið að stíga skref sem miði að því að nýtt fang­elsi verði byggt.

Þannig muni ófremd­ar­ástandi því sem teiknaðist upp á vakt Sjálf­stæðis­flokks­ins ljúka.

Þetta seg­ir Þor­björg í svari sínu við fyr­ir­spurn Guðrún­ar Haf­steins­dótt­ur, for­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins og for­vera Þor­bjarg­ar í dóms­málaráðuneyt­inu, í óund­ir­bún­um fyr­ir­spurn­um á Alþingi í dag.

Guðrún benti í fyr­ir­spurn sinni á að Fram­kvæmda­sýsl­an - Rík­is­eign­ir hafi lagt grunn­inn að nýju ör­ygg­is­fang­elsi á Stóra-Hrauni í stað Litla-Hrauns.

Nýtt ör­ygg­is­fang­elsi muni valda straum­hvörf­um

Fang­elsið verði að nor­rænni fyr­ir­mynd með áherslu á end­ur­hæf­ingu og ör­yggi fanga og fanga­varða og geti hýst allt að 100 fanga jafn­framt sem mögu­legt sé að bæta við 28 afplán­un­ar­rým­um.

Seg­ir Guðrún að full­yrða megi að upp­bygg­ing fang­els­is­ins að Stóra-Hrauni muni valda straum­hvörf­um í ís­lensku fulln­ustu­kerfi. Ekki aðeins bæta nú­ver­andi stöðu held­ur einnig stuðla að betra sam­fé­lagi þar sem öll­um verði boðið upp á rétt­læti og mögu­leika á nýrri byrj­un.

Útlend­inga­mál­in tíma­frek

Þor­björg sagði meðal ann­ars í svari sínu við fyr­ir­spurn Guðrún­ar að for­veri sinn væri vel læs á stöðuna í fang­els­um lands­ins. Þá sagði Þor­björg að fang­els­is­mál­in rétt eins og lög­gæsl­an og marg­ir grund­vall­ar­mála­flokk­ar mættu af­gangi síðustu rík­is­stjórn­ar vegna þess að út­lend­inga­mál­in tóku all­an henn­ar tíma.

Benti Þor­björg á dökka skýrslu Rík­is­end­ur­skoðunar sem sýndi að dóm­ar, jafn­vel í al­var­leg­um saka­mál­um á borð við al­var­leg of­beld­is­mál og kyn­ferðis­brota­mál, fyrnd­ust.

Þá sagðist Þor­björg vera búin að vera í ein­hverj­ar sjö eða átta vik­ur í ráðuneyt­inu og að hún væri far­in að skoða fang­els­is­mál­in og að for­veri sinn í dóms­málaráðuneyt­inu þurfi ekki að hafa áhyggj­ur af því að upp­bygg­ing sé ekki í kort­un­um.

mbl.is