Spennan magnast undir Sundhnúkagígaröðinni

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 17. mars 2025

Spennan magnast undir Sundhnúkagígaröðinni

Vísindamenn Veðurstofunnar bíða enn eftir því að sjá forboða eldgoss á mælum sínum en skjálftavirkni hefur aukist síðustu daga sem bendir til þess að þrýstingur á gosstöðvunum sé að aukast.

Spennan magnast undir Sundhnúkagígaröðinni

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 17. mars 2025

Kvikumagn undir Sundhnúkagígaröðinni hefur aldrei verið meira og gert er …
Kvikumagn undir Sundhnúkagígaröðinni hefur aldrei verið meira og gert er ráð fyrir afar skömmum fyrirvara á undan næsta gosi. Síðast var fyrirvarinn ekki nema um hálftími. mbl.is/Árni Sæberg

Vísindamenn Veðurstofunnar bíða enn eftir því að sjá forboða eldgoss á mælum sínum en skjálftavirkni hefur aukist síðustu daga sem bendir til þess að þrýstingur á gosstöðvunum sé að aukast.

Vísindamenn Veðurstofunnar bíða enn eftir því að sjá forboða eldgoss á mælum sínum en skjálftavirkni hefur aukist síðustu daga sem bendir til þess að þrýstingur á gosstöðvunum sé að aukast.

Samt hefur skjálftavirkni við Sundhnúkagígaröðina verið afar lítil í dag. Aðeins einn skjálfti hefur mælst við kvikuganginn síðustu rúmu tólf tíma og var sá fremur lítill – mældist 1,3 að stærð um kl. 8.37, einum kílómetra norðaustur af Sundhnúk.

Skjálftarnir eru því færri í dag heldur vaninn hefur verið síðustu daga en Kristín Elísa Guðmundsdóttir náttúruvársérfræðingur segir að lítið sé hægt að lesa úr dagamismuninum.

„Það er svolítið erfitt að túlka einhverja örfáa daga,“ segir Kristín Elísa við mbl.is en Veðurstofan hefur gefið út að skjálftavirkni hafi aukist síðustu daga.

Kortið sýnir staðsetningu jarðskjálfta í kringum Sundhnúkagígaröðina síðustu 14 daga. …
Kortið sýnir staðsetningu jarðskjálfta í kringum Sundhnúkagígaröðina síðustu 14 daga. Rauðir hringir sýna staðsetningu jarðskjálfta sem hafa orðið á síðustu þremur dögum, eða frá því að yfirferð var tímabundið breytt vegna truflunar. Þar má sjá að þeir skjálftar lenda á eða mjög nærri gossprungum sem hafa opnast frá því í desember 2023 sem sýndar eru með dökkrauðum línum. Aðrir litir sýna staðsetningu skjálfta áður en yfirferð var breytt. Kort/Veðurstofan

En hvenær vitum við að gos sé að hefjast?

Tæplega 40 milljón rúmmetrar af kviku eru undir Sundhnúkagígaröðinni og kvikumagn hefur því aldrei verið meira frá því að goshrinan hófst í desember 2023. Gert er ráð fyrir afar skömmum fyrirvara á undan næsta gosi. Síðast var fyrirvarinn ekki nema um hálftími.

Og hver er þessi fyrirvari?

Skýrustu merki um að gos sé að hefjast á Sundhnúkagígaröðinni hafa verið aukin skjálftavirkni í kvikuganginum samhliða þrýstingsbreytingum í borholum HS Orku í Svartsengi, sem benda til þess að kvika sé á hreyfingu í jörðu niðri.

Mælar Veðurstofunnar sýna hvorugt að svo stöddu, þannig að við getum andað léttar – í bili.

„Það er bara allt rólegt akkúrat núna en það getur breyst mjög hratt,“ segir Kristín.

Línuritið næt fram að 11. mars og sýnir áætlað magn …
Línuritið næt fram að 11. mars og sýnir áætlað magn kviku sem hefur bæst við undir Svartsengi á milli þeirra eldgosa eða kvikuhlaupa sem hafa orðið frá því í nóvember 2023. Kort/Veðurstofa Íslands

Hættumat óbreytt

Í tilkynningu sem Veðurstofa birti í dag segir að óbreytt hættumat sé í gildi til morgundags, 18. mars. 

Líklegasta sviðsmyndin að þetta kvikusöfnunartímabil endi með kvikuhlaupi og eldgosi sem kæmi fyrst upp á svæðinu milli Sundhnúks og Stóra-Skógfells.

Jafnframt áréttar stofnunin að engar breytingar hafa orðið á staðsetningu jarðskjálftavirkni á Sundhnúkagígaröðinni miðað við aðdraganda síðustu eldgosa, en mælar stofnunarinnar sýndu skakka mynd af skjálftasvæðum síðustu daga. Það hefur nú verið leiðrétt.

Hér getur þú fylgst með beinu streymi af Sundhnúkagígaröðinni.

mbl.is