Rússar gera nú atlögu að miðborg Kænugarðs með árásardrónum. Þar er forsetahöll Úkraínu og fjöldi annarra opinberra bygginga, en einnig hópur íslenskra blaðamanna á hóteli.

Fjöldi sprenginga hefur þegar orðið en óljóst er hvort nokkur dróni hafi hæft skotmark sitt.
Borgarstjóri Kænugarðs, Vítalí Klitsjkó, segir loftvarnakerfi að störfum á miðsvæðum borgarinnar. Í stuttri yfirlýsingu beinir hann því til borgarbúa að leita skjóls.
Meðfylgjandi myndskeið tók Eggert Jóhannesson, ljósmyndari mbl.is. Mælt er með að hlýtt sé á og horft til enda.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti hefur einnig rétt í þessu sent frá sér tilkynningu, þar sem hann segir að einmitt nú, í mörgum héruðum landsins, megi heyra hvað það er sem Rússland virkilega þurfi.
Að sögn forsetans eru um 40 Shahed-árásardrónar á flugi yfir landinu og loftvarnir virkar til að verjast þeim.
Slíkur dróni hafi þegar hæft sjúkrahús í Súmí-héraði í nótt og aðrir af sömu gerð séu einmitt nú á sveimi yfir Kænugarði.
„Það eru svona árásir að nóttu til af hálfu Rússa sem eyðileggja orkukerfi okkar, innviði og eðlilegt líf Úkraínumanna,“ skrifar Selenskí.
„Og sú staðreynd að þessi nótt er engin undantekning sýnir að þrýstingurinn á Rússland verður að aukast svo að úr verði friður.“
Bendir hann á að í dag hafi Vladimír Pútín Rússlandsforseti í raun hafnað tillögu um algjört vopnahlé.
„Rétt væri ef heimurinn svaraði með því að hafna nokkurri tilraun Pútíns til að framlengja stríðið.“