Ræddu um mögulega eignaraðild á kjarnorkuveri

Úkraína | 19. mars 2025

Ræddu um mögulega eignaraðild á kjarnorkuveri

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að á fundi hans og Donalds Trump Bandaríkjaforseta í dag hafi verið rætt um mögulega eignaraðild Bandaríkjanna að kjarnorkuverinu í Saporisjía-héraði, sem er nú undir yfirráðum Rússa.

Ræddu um mögulega eignaraðild á kjarnorkuveri

Úkraína | 19. mars 2025

Eldur kom upp við kjarnorkuverið á síðasta ári.
Eldur kom upp við kjarnorkuverið á síðasta ári. Skjáskot/X-reikningur Selenskís Úkraínuforseta.

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að á fundi hans og Donalds Trump Bandaríkjaforseta í dag hafi verið rætt um mögulega eignaraðild Bandaríkjanna að kjarnorkuverinu í Saporisjía-héraði, sem er nú undir yfirráðum Rússa.

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að á fundi hans og Donalds Trump Bandaríkjaforseta í dag hafi verið rætt um mögulega eignaraðild Bandaríkjanna að kjarnorkuverinu í Saporisjía-héraði, sem er nú undir yfirráðum Rússa.

Hugmyndin kemur frá Trump og er það nýjasta útspil hans til að tryggja varanlegt vopnahlé á innrásarstríði Rússa í Úkraínu. 

„Við ræddum aðeins eitt orkuver, sem er undir hernámi Rússa,“ sagði Selenskí við blaðamenn í dag en hann er staddur í opinberri heimsókn í Finnlandi. 

Saporisjía-orkuverið er það stærsta sinnar tegundar í Evrópu. Það var hertekið af rússneskum hersveitum snemma í innrás þeirra í Úkraínu árið 2022.

Selenskí segir að það geti tekið allt að tvö ár að gera kjarnorkuverið starfhæft á ný en undirstrikaði mikilvægi þess fyrir Úkraínumenn og Evrópu alla. 

Trump og Selenskí töluðu saman í símann í dag.
Trump og Selenskí töluðu saman í símann í dag. AFP/Samsett mynd

Upplifði engan þrýsting af hálfu Trumps

Samtal Trumps og Pútín í dag er það fyrsta sem vitað er um frá því að fundur þeirra í Hvíta húsinu í lok febrúar fór um þúfur. Trump sagði í dag að samtalið hafi verið „mjög gott“ og sagði Selenskí að hann hafi ekki upplifað neinn þrýsting af hálfu Trumps að fallast á kröfur Rússlands. 

„Ég vil vera hreinskilinn, mjög hreinskilinn. Í dag fann ég ekki fyrir neinum þrýstingi frá Trump, hann var enginn. Og þetta er staðreynd. Þið vitið að ég er opin persóna. Ef það hefði verið hefði ég sagt ykkur það hreinskilningslega,“ sagði Selenskí. 

Viðræður Trumps við rússneska ráðmenn um varanlegt vopnahlé á svæðinu hafa vakið upp óhug á meðal Úkraínumanna og hafa þeir óttast að úkraínsk stjórnvöld verði neydd til þess að fallast á kröfur Rússa, eins og að gefa upp landsvæði. 

mbl.is