Sakar Samfylkingu um sýndarmennsku

Alþingi | 19. mars 2025

Sakar Samfylkingu um sýndarmennsku

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir frumvarp þingmanna Samfylkingarinnar er varðar systkinaforgang á leikskólum sýndarmennsku.

Sakar Samfylkingu um sýndarmennsku

Alþingi | 19. mars 2025

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Ólafur Árdal

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir frumvarp þingmanna Samfylkingarinnar er varðar systkinaforgang á leikskólum sýndarmennsku.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir frumvarp þingmanna Samfylkingarinnar er varðar systkinaforgang á leikskólum sýndarmennsku.

Hún segir í færslu á Facbeook í gær að misjafnt sé milli sveitarfélaga hvort systkinaforgangur gildi, en ekkert sé því til fyrirstöðu að Reykjavíkurborg bjóði slíkan forgang.

Samfylkingin hefur verið í meirihluta í borginni frá árinu 2010, og þar af var Dagur B. Eggertsson borgarstjóri frá 2011-2024. Í dag er samfylkingarkonan Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri.

Snúi út úr staðreyndum

„Í stað þess að axla ábyrgð á því ófremdarástandi sem þau hafa skapað fjölskyldufólki í Reykjavík – með alvarlegum vandræðum í leikskólamálum – ákveða þau að setja upp sviðsetta sýningu á Alþingi,“ skrifar hún.

Hún segir Samfylkinguna snúa út úr staðreyndunum og reyna að „klína“ ábyrgðinni á löggjafann.

„Það er þeirra eigin stjórn borgarinnar sem hefur brugðist börnum og foreldrum.“

Hún segir ekki hægt að skrifa frumvarpið á „saklausa tilraun nýrra þingmanna“.

„Nei, einn af flutningsmönnunum er enginn annar en Dagur B. Eggertsson sjálfur! Sá sem hefur átt stærstan þátt í að koma leikskólamálum í þann óboðlega farveg sem þau eru í dag.
Þessi leiktjöld Samfylkingarinnar breyta engu um þá staðreynd að fjölskyldur í Reykjavík hafa setið fastar í leikskólamálaklúðri árum saman – og nú ætlar nýr vinstri meirihlutinn ekki einu sinni að reyna að laga það áður en kosningar skella á.“

Frumvarp þingmanna Samfylkingarinnar er til breytingar á lögum um leikskóla. Í frumvarpinu er lagður til nýr málsliður sem hljóðar svo:

Sveitarstjórn er heimilt að haga innritun með tilliti til þess að systkini eða börn sem hafa sama lögheimili geti sótt sama leikskóla, sem og með hliðsjón af nálægð leikskóla við lögheimili barna.

mbl.is