Boðar til neyðarfundar um bandarísk vopn

Boðar til neyðarfundar um bandarísk vopn

Varnarmálaráðherra Þýskalands mun ráðfæra sig við æðstu hershöfðingja landsins um öryggismál sem tengjast bandarískum vopnakerfum, sérstaklega F-35 orrustuþotum.  samkvæmt skýrslu í innlendu dagblaði á fimmtudag.

Boðar til neyðarfundar um bandarísk vopn

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 20. mars 2025

Þjóðverjar hafa pantað 34 herþotur af gerðinni F-35 frá Bandaríkjunum.
Þjóðverjar hafa pantað 34 herþotur af gerðinni F-35 frá Bandaríkjunum. AFP

Varnarmálaráðherra Þýskalands mun ráðfæra sig við æðstu hershöfðingja landsins um öryggismál sem tengjast bandarískum vopnakerfum, sérstaklega F-35 orrustuþotum.  samkvæmt skýrslu í innlendu dagblaði á fimmtudag.

Varnarmálaráðherra Þýskalands mun ráðfæra sig við æðstu hershöfðingja landsins um öryggismál sem tengjast bandarískum vopnakerfum, sérstaklega F-35 orrustuþotum.  samkvæmt skýrslu í innlendu dagblaði á fimmtudag.

Frá þessu greinir þýska blaðið Süddeutsche Zeitung. 

Mörg Evrópuríki eru nú að endurskoða þörf sína fyrir bandarískum vopnum og tækni í kjölfar ummæla Trump Bandaríkjafoseta sem hafa varpað skugga á samstarf Bandaríkjanna og Evrópu.

Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, hyggst ráðfæra sig við hátt setta hershöfðingja, sérfræðinga ráðuneytisins og innkaupafulltrúa, að því er segir í umfjöllun blaðsins. 

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur hrist upp í vestrænu samstarfi …
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur hrist upp í vestrænu samstarfi með ummælum sínum um Evrópusambandið og NATO. AFP

Hafa áhyggjur

Þar mun áherslan vera á bandarísk vopnakerfi sem þýski herinn notar nú þegar eða hefur pantað. Þjóðverjar hafa t.d. pantað 35 F-35 orrustuþotur frá Bandaríkjunum, en menn hafa nú áhyggjur af því að bandarísk stjórnvöld geti hugsanlega haft stjórn á þotunum.

Sérfræðingar hafa lýst yfir áhyggjum varðandi flutning á nauðsynlegum varahlutum til landsins og þá hafa aðrir áhyggjur af því að svokallaður„drápsrofi“ geti mögulega verið innbyggður í herþoturnar, sem gefi bandarískum yfirvöldum kleift að ráða því hvort vélarnar hefji sig til flugs eður ei. 

Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, vill fara yfir stöðuna með hershöfðingjum …
Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, vill fara yfir stöðuna með hershöfðingjum og sérfræðingum. AFP

Gögn og varahlutir mikilvægir

Carlo Masala, stjórnmálafræðingur við Bundeswehr-háskólann í München, segir í samtali við blaðið að flugvélarnar séu atriði sem hægt sé að þrýsta á í samskiptum ríkjanna, óháð því hvort einhver drápsrofi sé í þeim. 

„Vandamálið með F-35 snýst frekar um gagnasendingar og varahluti,“ sagði hann.

„Ef það er ekki til staðar þá glatar F-35 miklu af virkni sinni [...] Ef skorið er á það þá er það vandamál.“

mbl.is