Kristrún skuldar útskýringar

Kristrún skuldar útskýringar

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skuldar þjóðinni svör um sinn þátt í máli Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fráfarandi barna- og menntamálaráðherra.

Kristrún skuldar útskýringar

Ásthildur Lóa segir af sér | 20. mars 2025

Málið krefst frekari skoðunar að mati Hildar.
Málið krefst frekari skoðunar að mati Hildar. Samsett mynd

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skuldar þjóðinni svör um sinn þátt í máli Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fráfarandi barna- og menntamálaráðherra.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skuldar þjóðinni svör um sinn þátt í máli Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fráfarandi barna- og menntamálaráðherra.

Þetta segir Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is.

„Samkvæmt fréttaflutningi sýnist mér Kristrún Frostadóttir skulda okkur öllum útskýringar á sínum þætti málsins. það er óskandi að hún geri það fljótt og án undanbragða,“ segir Hildur.

Lak erindið úr ráðuneyti Kristrúnar?

Ásthildur Lóa sagði af sér fyrr í kvöld vegna fréttar Ríkisútvarpsins um að hún hefði átt samræði við 15 ára dreng þegar hún var 22 ára. Ári seinna áttu þau saman barn. 

For­sæt­is­ráðuneyti Kristrún­ar Frosta­dótt­ur fékk er­indi um þetta mál á sitt borð fyr­ir viku síðan, frá aðstand­anda barns­föður ráðherra.

Starfs­menn ráðuneyt­is­ins full­vissuðu send­anda um að öll er­indi væru trúnaðar­mál.

Forsætisráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu þar sem því er hafnað að erindið hafi lekið úr ráðuneytinu. Aftur á móti er sagt að aðstoðarmaður Kristrúnar hafi haft samband við aðstoðarmann Ásthildar til að forvitnast um það hvort að hún kannaðist við sendandann, sem hún gerði ekki að sögn hennar.

Aftur á móti hringdi Ásthildur í sendandann þrátt fyrir, að hennar sögn, að hún hafi hvorki þekkt viðkomandi né erindið. Þar að auki var fundarboðið stílað á Kristrúnu en ekki Ásthildi.

Mörgum spurningum er ósvarað en ekki næst í Kristrúnu, aðstoðarmann hennar eða Ásthildi Lóu til þess að svara þeim.

Afsögn Ásthildar það eina rétta í stöðunni

„Þetta eru sláandi fréttir úr Efstaleiti varðandi fráfarandi barnamálaráðherra. Ég segi fyrir mitt leyti að þrátt fyrir að ráðherra gerir augljóslega það eina rétta í stöðunni með því að segja af sér, er þessu máli hvergi nærri lokið,“ segir Hildur.

Hildur vill ekki segja hvort að Kristrún eigi að segja af sér ef í ljós kemur að forsætisráðuneytið hafi lekið trúnaðarerindi. 

„Það lítur alvarlega út og krefst frekari skoðunar. En í svona viðkvæmum málum ber að taka eitt skref í einu,“ segir hún.

mbl.is