Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fráfarandi mennta- og barnamálaráðherra, hefur skaðað ríkisstjórnina að einhverju leyti. Þetta segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar. Segir hún að það lýsi samt ríkisstjórninni best og Ásthildi Lóu að strax hafi verið brugðist við og hún sagt af sér vegna málsins.

Fjöldi erlendra fjölmiðla hefur birt fréttir af málinu í dag og var fréttin meðal annars á meðal mest lesnu frétta dagsins á vef BBC.
Ásthildur sagði af sér í gær eftir að greint var frá því að hún hefði átt samræði við 15 ára dreng þegar hún var sjálf 22 ára gömul, fyrir 35 árum síðan. Eignaðist Ásthildur barn þeirra, en í umfjöllun Rúv um málið var jafnframt sagt að Ásthildur hefði tálmað aðgengi föðurins að barninu. Hefur Ásthildur síðan þá sent frá sér yfirlýsingu og sagt sína hlið málsins og þar á meðal sagt áhuga föðurins á uppeldinu hafa verið lítinn.
Á blaðamannafundi oddvita ríkisstjórnarinnar fyrir skömmu sagði Þorgerður að þetta væri ekki besta málið sem gat komið fyrir ríkisstjórnina, sem nú hefur setið í um þrjá mánuði. „En mestu skipti hvernig brugðist er við,“ bætti hún við.
Í kjölfarið var Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra spurð út í ríkisstjórnarsamstarfið, nú þegar hvert vandræðamálið hefði komið á eftir öðru sem tengdist Flokki fólksins. Sagði Kristrún að afsögn Ásthildar hefði ekkert með ríkisstjórnina eða vinnu hennar að gera, heldur væri það vegna persónulegs máls sem hefði átt sér stað fyrir 35 árum síðan. „Auðvitað vont mál, en tengist ekkert störfum okkar.“
Sagði Kristrún að hún teldi að fólk ætti einmitt að treysta þessari ríkisstjórn fyrir að bregðast rétt við og sagði að aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hún hefði fengið staðfestingu á sannleiksgildi frásagnarinnar hafi Ásthildur ákveðið að segja af sér. Rétt er þó að nefna að forsætisráðuneytinu barst erindi í síðustu viku með beiðni um fund með forsætisráðherra sem mennta- og barnamálaráðherra mætti einnig sitja. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins kom ekkert fram í erindinu um hvað málið snerist, ekki fyrr en óskað var frekari upplýsinga.
Tók Kristrún jafnframt fram að með brotthvarfi Ásthildar væri verið að passa upp á störf ríkisstjórnarinnar og að persóna ráðherra væri ekki að þvælast fyrir stjórnun landsins.