Styrkja umbótaverkefni í öryggismálum

Öryggi sjófarenda | 21. mars 2025

Styrkja umbótaverkefni í öryggismálum

Samgöngustofa hefur eftir umsóknum um styrki til rannsóknarverkefna sem miða að því að auka öryggi á sjó. Í boði eru 2,5 milljónir króna og er styrkurinn veittur bæði einstaklingum og félögum, að því er segir í tilkynningu á vef stofnunarinnar.

Styrkja umbótaverkefni í öryggismálum

Öryggi sjófarenda | 21. mars 2025

Ávallt er unnið að því aða uka öryggi sjómanna og …
Ávallt er unnið að því aða uka öryggi sjómanna og hefur mikið áunnist í þeim efnum. mbl.is/Árni Sæberg

Samgöngustofa hefur eftir umsóknum um styrki til rannsóknarverkefna sem miða að því að auka öryggi á sjó. Í boði eru 2,5 milljónir króna og er styrkurinn veittur bæði einstaklingum og félögum, að því er segir í tilkynningu á vef stofnunarinnar.

Samgöngustofa hefur eftir umsóknum um styrki til rannsóknarverkefna sem miða að því að auka öryggi á sjó. Í boði eru 2,5 milljónir króna og er styrkurinn veittur bæði einstaklingum og félögum, að því er segir í tilkynningu á vef stofnunarinnar.

Samgöngustofa veitir umræddan styrk á hverju ári til rannsóknarverkefna sem tengjast öryggi skipa, atvinnusjómanna, farþega og búnaðar um borð í skipum sem og verkefna sem snúa að heilsusamlegu umhverfi sjófarenda.

Fram kemur á síðu styrksins að markmið úthlutunarinnar er að veita styrki til verkefna sem stuðla að auknu öryggi sjófarenda, efla alþjóðasamvinnu um slík verkefni, styðja við hönnun eða smíði frumgerðartækja og búnaðar sem líkleg eru til að auka öryggi sjófarenda og öryggi  í skipum og styrkja verkefni til eflingar fræðslu um öryggi sjófarenda.

mbl.is