Inga: „Fjölmiðlar eigi bara að gera sitt besta“

„Ég held að fjölmiðlar eigi bara að gera sitt besta hverju sinni,“ svaraði Inga Sæland spurð hvað henni fyndist um umfjöllun fjölmiðla í tengslum við mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra.

Ásthildur Lóa segir af sér | 23. mars 2025

Inga Sæland á Bessastöðum.
Inga Sæland á Bessastöðum. mbl.is/Ólafur Árdal

„Ég held að fjölmiðlar eigi bara að gera sitt besta hverju sinni,“ svaraði Inga Sæland spurð hvað henni fyndist um umfjöllun fjölmiðla í tengslum við mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra.

„Ég held að fjölmiðlar eigi bara að gera sitt besta hverju sinni,“ svaraði Inga Sæland spurð hvað henni fyndist um umfjöllun fjölmiðla í tengslum við mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra.

Inga sagði það hafa verið dapurlegt að kveðja Ásthildi Lóu, „en við erum að fá mjög traustan og yndislegan mann í staðinn sem mun halda áfram því góða verki sem Ásthildur Lóa var búin að hrinda af stað.“

Hún sagði ákvörðunina um Guðmund Inga Kristinsson sem nýjan ráðherra hafa legið ljóst fyrir.

Verður einhver stefnubreyting með nýjum barnamálaráðherra?

„Nei, ég held að enn sem komið er þá leyfum við honum að feta sig í ráðuneytinu og finna sinn takt þar.“

Það hefur verið nefnt að Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður sé barnasálfræðingur, hefur Guðmundur einhverja reynslu þegar kemur að menntamálum?

„Guðmundur hefur mikla reynslu af öllum málum. Hann hefur verið á Alþingi Íslendinga síðan 2017.“

Inga sagði málið vera enn eitt málið sem þjappi ríkisstjórninni saman.

mbl.is