Fjórðungur íslensku þjóðarinnar hefur sniðgengið bandarískar vörur í mótmælaskyni við ríkisstjórn Donalds Trumps. Þetta sýna niðurstöður könnunar Prósents.

Eftirfarandi spurning var lögð fyrir þátttakendur: „Hefur þú á síðastliðnum mánuði sniðgengið vörur frá Bandaríkjunum til að mótmæla aðgerðum ríkisstjórnar Donalds Trump?“
Niðurstöður leiða í ljós að 6% svarenda hafa sniðgengið vörur frá Bandaríkjunum að öllu leyti, 17% að einhverju leyti, 32% segjast vera að íhuga að gera það, 39% segjast alls ekki gera það, 4% segjast óviss og 1% vilja ekki svara.
Ef litið er til þeirra sem tóku afstöðu þá svara 25% þjóðarinnar játandi, 34% segjast vera að íhuga það og 41% svarar neitandi.
Netkönnun var lögð fyrir könnunarhóp Prósents yfir tveggja vikna tímabili, frá 13. til 26. mars. Þátttakendur voru 2.200 talsins, allir 18 ára og eldri, og var svarhlutfall 50%.
Niðurstöður sýna að konur eru líklegri til að íhuga það að sniðganga bandarískar vörur og karlar eru líklegri til að hafa alls ekki sniðgengið vörur frá Bandaríkjunum.
Þá eru 55 ára og eldri marktækt líklegri til að hafa sniðgengið vörur frá Bandaríkjunum en 18 til 34 ára aldurshópurinn.
Þeir sem eru með háskólapróf eru marktækt líklegri til að hafa sniðgengið bandarískar vörur en þeir sem eru með framhaldsskólapróf, grunnskólapróf eða minni menntun.
Þeir sem búa á landsbyggðinni eru marktækt líklegri til að hafa ekki sniðgengið bandaríska vörur heldur en þeir sem búa í Reykjavík.