„Mjög skýrt að Evrópa mun ekki bakka“

Úkraína | 27. mars 2025

„Mjög skýrt að Evrópa mun ekki bakka“

„Þetta er í rauninni í fyrsta skipti sem allir þessir aðilar hittast á svona fundi í tengslum við Úkraínu og öryggismál í Evrópu. Það hafa verið þó nokkuð margir tæknilegir fundir með sérfræðingum úr ráðuneytum og ríkisstjórnum en það er talið líka mjög nauðsynlegt að samræma líka pólitísku skilaboðin,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við mbl.is.

„Mjög skýrt að Evrópa mun ekki bakka“

Úkraína | 27. mars 2025

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra heilsar hér Emmanuel Macron, forseta Frakklands.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra heilsar hér Emmanuel Macron, forseta Frakklands. AFP/ Ludovic Marin

„Þetta er í rauninni í fyrsta skipti sem allir þessir aðilar hittast á svona fundi í tengslum við Úkraínu og öryggismál í Evrópu. Það hafa verið þó nokkuð margir tæknilegir fundir með sérfræðingum úr ráðuneytum og ríkisstjórnum en það er talið líka mjög nauðsynlegt að samræma líka pólitísku skilaboðin,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við mbl.is.

„Þetta er í rauninni í fyrsta skipti sem allir þessir aðilar hittast á svona fundi í tengslum við Úkraínu og öryggismál í Evrópu. Það hafa verið þó nokkuð margir tæknilegir fundir með sérfræðingum úr ráðuneytum og ríkisstjórnum en það er talið líka mjög nauðsynlegt að samræma líka pólitísku skilaboðin,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við mbl.is.

Hún sótti í dag leiðtogafund um málefni Úkraínu í París. Þar komu saman leiðtogar 27 Evrópuríkja og ræddu áframhaldandi stuðning við Úkraínu, viðræður um vopnahlé og hvernig tryggja megi frið og öryggi í Úkraínu til frambúðar.

„Kannski líka að koma því til skila núna, að þrátt fyrir að það hafi verið miklar umræður um vopnahlé og að samningaviðræður séu farnar af stað, þá er vopnahlé ekki í höfn. Þess vegna erum við enn þá á þeim stað að þurfa bæði að skapa þrýsting á Rússa og styrkja Úkraínu í aðdraganda þess að vopnahlé vonandi næst,“ segir Kristrún jafnframt.

Gert kleift að styrkja eigin framleiðslu

Á fundinum kom það skýrt fram að ekki verður bakkað með viðskiptaþvinganir gegn Rússum, af hálfu Evrópuþjóða, og að haldið verður áfram að styrkja Úkraínumenn til að gera þeim kleift að framleiða vopn innanlands.

„Lykilskilaboðin sem koma út úr fundinum eru tvíþætt er varðar það markmið að vopnahlé náist. Annars vegar að setja áfram þrýsting á Rússa með áframhaldandi viðskiptaþvingunum og það sé mjög skýrt að Evrópa mun ekki bakka. Þessar þjóðir sem voru þarna við borðið, munu ekki bakka með viðskiptaþvinganir.

Síðan að halda áfram að styrkja Úkraínu í núverandi baráttu, á meðan er verið að vinna í vopnahléi. Þar er fólk sammála um að það þurfi að styrkja Úkraínumenn sjálfa, auka framlög til varnarmála inni í Úkraínu til að gera þeim kleift að styrkja eigin framleiðslu, til að mynda á vopnum og varnarþáttum. Þetta er mikilvægt að komist til skila,“ segir Kristrún.

Styrkja vopnaframleiðslu og jarðsprengjuleit

Hvað varðar þátt Íslands segir hún fundi sem þessa líka til þess að samræma og tryggja að fólk sé að vinna að þeim þáttum þar sem styrkur hvers lands fær að njóta sín.

„Við höfum rætt um að það viðbótarfjármagn sem við ætlum að leggja til Úkraínu, að það fari í þætti sem við vitum að hentar Úkraínu mjög vel. Það er þetta danska módel, sem snýst um að styrkja vopnaframleiðslu í Úkraínu. Síðan er það áframhaldandi jarðsprengjuleit og eyðing. Síðan er verið að skoða aðra skipulagða aðkomu og verkefni annarra ríkja sem við tökum þátt í,“ segir Kristrún.

„Þannig það má segja að þetta sé svona verið að þétta raðirnar varðandi styrkingu Úkraínu til skamms tíma og þrýstingur og að reyna að veikja Rússana og vinna hvar fólk á heima í þessum pökkum,“ bætir hún við.

Þá hafi það verið skýr skilaboð frá Íslandi, sem fleiri hafi tekið undir, um að vinna verði að þessu markmiði með NATO og Bandaríkjunum. Evrópa fari ekki ein í þessa vegferð. En Kristrún hefur haldið þeim skilaboðum á lofti á öllum þeim fundum sem hún hefur átt.

„Við erum náttúrulega NATO-ríki í grunninn og þaðan sækjum við okkar varnir og eins í gegnum tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin og við auðvitað viljum vera þétt með Evrópu þegar Evrópa er að þjappa sér saman. En Evrópa er að þjappa sér saman til að verða sterkari bandamaður með NATO, innan NATO og Bandaríkjunum. Þannig þetta er ekki annað hvort eða.“

„Talað um að Evrópa væri komin aftur“

Kristrún segir hljóðið í leiðtogunum á fundinum að mörgu leyti hafa verið gott þó fólk hafi áhyggjur af ástandinu, enda hafi orðið miklar hreyfingar í alþjóðamálum á mjög skömmum tíma.

„En fólk er líka ánægt með, og það var talað um að Evrópa væri komin aftur. Það er að segja að þessi lönd sem þarna eru og lönd sem hafa átt samband inn í álfuna, eru að þétta sig mjög hratt. Það er mikið búið að gerast á örfáum vikum og það sýnir sig að þessi lönd geti unnið vel saman. Það geti orðið verulegar stefnubreytingar í stjórnmálum þessara landa, eins og við sjáum með auknum varnarframlögum.“

Ljóst sé að aukinn kraftur sé kominn í þær þjóðir sem komu saman á fundinum í dag og meiri meðvitund um samkeppnishæfni álfunnar.

„Ég heyrði það frá Evrópusambandinu, að þau eru mjög meðvituð um að samkeppnishæfni álfunnar er líka öryggismál. Þannig þau eru líka farin að horfa á efnahagslegu hliðin á þessu og mörg af löndunum sem standa fyrir utan ESB þau eru meðvituð um að þetta er mjög mikilvægt.“

mbl.is