Barn að lögum

Umræða | 30. mars 2025

Barn að lögum

Lögráða verða menn 18 ára. Ákvæði þess efnis er nú í 1. gr. núgildandi lögræðislaga. Þar kemur einnig fram að lögráða maður sé bæði sjálfráða og fjárráða. Skipting lögræðis í sjálfræði og fjárræði hefur í dag fyrst og fremst þýðingu þegar kemur að lögræðissviptingum sem geta snúið annaðhvort að sjálfræði eða fjárræði eða hvoru tveggja í einu.

Barn að lögum

Umræða | 30. mars 2025

Magnús Óskarsson, hæstaréttarlögmaður hjá Lögmáli ehf.
Magnús Óskarsson, hæstaréttarlögmaður hjá Lögmáli ehf. mbl.is/Árni Sæberg

Lögráða verða menn 18 ára. Ákvæði þess efn­is er nú í 1. gr. nú­gild­andi lögræðislaga. Þar kem­ur einnig fram að lögráða maður sé bæði sjálfráða og fjár­ráða. Skipt­ing lögræðis í sjálfræði og fjár­ræði hef­ur í dag fyrst og fremst þýðingu þegar kem­ur að lögræðis­svipt­ing­um sem geta snúið annaðhvort að sjálfræði eða fjár­ræði eða hvoru tveggja í einu.

Lögráða verða menn 18 ára. Ákvæði þess efn­is er nú í 1. gr. nú­gild­andi lögræðislaga. Þar kem­ur einnig fram að lögráða maður sé bæði sjálfráða og fjár­ráða. Skipt­ing lögræðis í sjálfræði og fjár­ræði hef­ur í dag fyrst og fremst þýðingu þegar kem­ur að lögræðis­svipt­ing­um sem geta snúið annaðhvort að sjálfræði eða fjár­ræði eða hvoru tveggja í einu.

For­eldr­ar barns, sem ólögráða er fyr­ir æsku sak­ir, og þeir sem barni koma í for­eldra stað ráða per­sónu­leg­um hög­um þess. Nefn­ast þau lögráð for­sjá og fer um hana sam­kvæmt ákvæðum barna­laga og lög­um um vernd barna og ung­menna.

Í 3. gr. nú­gild­andi barna­vernd­ar­laga kem­ur fram að með börn­um í þeim lög­um sé átt við þá sem eru yngri en 18 ára. Í samn­ingi Sam­einuðu þjóðanna um rétt­indi barns­ins (barna­sátt­mál­an­um), sem lög­gilt­ur var hér á landi með lög­um 19/​2013, er barn skil­greint sem ein­stak­ling­ur und­ir 18 ára aldri.

Í lögræðis­lög­um nr. 68/​1984, sem voru í gildi árið 1989, var þetta tíma­mark ekki jafn af­drátt­ar­laust. Þar var kveðið á um að maður væri sjálfráða 16 ára en fjár­ráða 18 ára en að sá sem væri sjálfráða og fjár­ráða væri lögráða. Mun­ur­inn á sjálfræði og fjár­ræði var sá að sjálfráða maður réði einn öðru en fé sínu en fjár­ráða maður réði einn fé sínu. Þess­ar sömu skil­grein­ing­ar koma enn fram í nú­gild­andi lögræðis­lög­um.

Mun­ur­inn er að í eldri lög­un­um fóru menn að jafnaði í gegn­um tíma­bil frá 16 til 18 ára ald­urs þar sem þeir voru sjálfráða en ekki fjár­ráða en í dag verða menn bæði sjálfráða og fjár­ráða og þannig lögráða í einu lagi við 18 ára ald­ur. Aðeins reyn­ir á mun­inn á sjálfræði og fjár­ræði við svipt­ingu ann­ars hvors sem ger­ist yf­ir­leitt vegna ein­hvers kon­ar heilsu­brests eða annarra mjög al­var­legra aðstæðna.

Í lög­um nr. 53/​1966, um vernd barna og ung­menna, sem voru í gildi árið 1989, var kveðið á um það að með börn­um sam­kvæmt þeim lög­um væri átt við ein­stak­linga inn­an 16 ára ald­urs, en ung­menni væru ung­ling­ar á ald­urs­skeiði 16 til 18 ára.

Í nú­gild­andi ákvæði 202. gr. al­mennra hegn­ing­ar­laga, nr. 19/​1940 er það gert refsi­vert að hafa sam­ræði eða önn­ur kyn­ferðismök við barn yngra en 15 ára. Er það þetta ákvæði og sá ald­ur sem átt er við þegar rætt er um sam­ræðis­ald­ur í dag­legu tali.

Fram til árs­ins 2007 var þessi ald­ur 14 ár en var þá hækkaður til meira sam­ræm­is við það sem gild­ir ann­ars staðar á Norður­lönd­um. Í ákvæðinu er tekið fram að lækka megi refs­ingu eða láta hana falla niður, ef ger­andi og þolandi eru á svipuðum aldri og þroska­stigi.

Sum­ir geta staldrað lengi við á þroska­stigi en svo kem­ur að því fyrr eða síðar að ald­ur­inn er ekki leng­ur nógu svipaður til að lækka megi refs­ingu eða láta hana niður falla.

Í al­menn­um hegn­ing­ar­lög­um eins og þau eru í dag er það gert refsi­vert að hafa sam­ræði eða önn­ur kyn­ferðismök við skjól­stæðing í trúnaðarsam­bandi sé skjól­stæðing­ur­inn yngri en 18 ára. Jafn­framt er kveðið á um það að hver sem hef­ur sam­ræði eða önn­ur kyn­ferðismök við barn á aldr­in­um 15, 16 eða 17 ára sem hon­um hef­ur verið trúað fyr­ir til kennslu eða upp­eld­is skuli sæta fang­elsi.

Ákvæði al­mennra hegn­ing­ar­laga voru með öðru sniði árið 1989. Þar sagði í ákvæði þágild­andi 201. gr.: „Ef maður hef­ur sam­ræði við stúlku, yngri en 18 ára, sem er kjör­dótt­ir hans eða fóst­ur­dótt­ir, eða hon­um hef­ur verið trúað fyr­ir til kennslu eða upp­eld­is, þá varðar það varðhaldi eða fang­elsi allt að 4 árum.“ Þessu var breytt árið 1992 og upp frá því hef­ur ekki skipt máli hvers kyns ger­andi og þolandi eru.

Pist­ill­inn birt­ist fyrst í ViðskiptaMogg­an­um sem kom út sl. miðviku­dag.

mbl.is