„Óútreiknanleikinn hefur aldrei verið meiri,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur og doktorsnemi í alþjóðasamskiptum, spurð álits á ummælum Baldurs Þórhallssonar, um hugsanlega ásælni Bandaríkjaforseta í Ísland.
„Óútreiknanleikinn hefur aldrei verið meiri,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur og doktorsnemi í alþjóðasamskiptum, spurð álits á ummælum Baldurs Þórhallssonar, um hugsanlega ásælni Bandaríkjaforseta í Ísland.
„Óútreiknanleikinn hefur aldrei verið meiri,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur og doktorsnemi í alþjóðasamskiptum, spurð álits á ummælum Baldurs Þórhallssonar, um hugsanlega ásælni Bandaríkjaforseta í Ísland.
Baldur, sem er prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, deildi færslu á facebook í gær þar sem hann sagði það „líklega eingöngu tímaspursmál hvenær bandarískir ráðamenn munu tala um mikilvægi þess að þeir ráði yfir Íslandi“.
„Íslensk stjórnvöld verða að vera undirbúin undir hvaða sviðsmynd sem er, það er bara ekkert annað í stöðunni, þó það sé auðvitað ekki víst að nokkuð gerist – enda er Baldur að setja þetta fram sem möguleika,“ segir Vilborg.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur haldið því fram að mikilvægt sé fyrir alþjóðlegan frið, öryggi og styrk að Bandaríkin fái yfirráð yfir Grænlandi.
Vilborg vísar til þess, þegar hún segir að þó það hafi ekki gerst nú þegar, þá geti Íslendingar ekki útilokað það að þeir geti fundið sig í svipaðri stöðu á einhvern hátt og Grænlendingar standa frammi fyrir í dag.
„Við getum ekki bara treyst á það að við verðum undanskilin í þessari atburðarrás allri. Þó að þetta hafi ekki beinst að okkur hingað til þá er óútreiknanleikinn einfaldlega það mikill að við getum ekki útilokað það og við þurfum að vera undirbúin undir þann möguleika.
Staðan er breytt, stefnan og orðræðan í Bandaríkjunum hefur ekki verið svona áður. Raunveruleikinn sem við þekkjum hefur verið allt annar. Við þurfum að vera undirbúin öllu og gera okkar heimavinnu.“
Meðal þess sem Baldur sagði í færslunni er að Bandaríkin séu að reka afdráttarlausa útþenslustefnu, ertu sammála því?
„Hingað til hefur orðræðan verið þannig, eða allavega í þá átt. Að einhverju leyti höfum við ekki séð hvert lokatakmarkið er. Þetta hefur verið skýrt á þann máta að Trump sé að einhverju leyti að ögra og reyna að ná sínu fram í einhverjum mögulegum framtíðar samningaviðræðum. Það er ekki víst hvað gerist en við þurfum að vera öllu undirbúin í óvissunni, þetta eru ókunnar slóðir.“
Það er mat Vilborgar að varast ætti að afsaka of mikið allt sem að Trump segir. Við séum að sjá breytingar innan Bandaríkjanna sem séu mjög stórtækar, mjög róttækar gegn mannréttindum, lýðræðinu og réttarríkinu.
„Við erum nú þegar að sjá þessa þróun innanlands í Bandaríkjunum. Stöðugar fréttir um atvik þar sem að grundvallarréttindi fólks eru ekki virt og ekki verið að fylgja reglum réttarríkisins eða lögum, það virðist vera að ganga ansi langt. Þannig að ég tel bara fulla ástæðu til þess að vera undirbúin fyrir hvað sem er.
Auðvitað verður mótstæða við útþenslustefnu – þar sem fullveldi ríkja, sjálfsákvörðunarrétt ríkja og þeim leikreglum sem við aðhyllumst er ógnað – fyrst og fremst frá Evrópu og öðrum ríkjum sem hægt er að kalla Vesturlönd eða bandamenn Vesturlanda.“
Að lokum segir Vilborg vonina hafa verið að nálgun Bandaríkjaforseta sé meira orðræða heldur en raunveruleg áætlun um ákveðnar framkvæmdir.
„Við þurfum að vera undirbúin fyrir allt en að sjálfsögðu er það ósk allra að geta áfram átt í góðu samstarfi við Bandaríkin, sem eru mjög náinn bandamaður okkar.
Öryggi okkar og varnarmál eru algjörlega undir Bandaríkjunum komin eins og staðan er í dag, með varnarsamningnum við Bandaríkin.“