„Ég vil að þú deilir alltaf staðsetningunni þinni“

Kynferðisbrot | 31. mars 2025

„Ég vil að þú deilir alltaf staðsetningunni þinni með mér“

Er það rautt flagg að maður vilji ekki að maki sinn klæðist flegnum eða þröngum fötum? Að manni finnist kynlífið búið um leið og einn fær fullnægingu? Eða að maður krefjist þess að makinn sinn sé ávallt með farða svo ekki sjáist í bólur?

„Ég vil að þú deilir alltaf staðsetningunni þinni með mér“

Kynferðisbrot | 31. mars 2025

Það er eldrautt flagg, að mati tónlistarkonunnar Katrínar Myrru, ef …
Það er eldrautt flagg, að mati tónlistarkonunnar Katrínar Myrru, ef einhver vill alltaf geta séð staðsetningu maka síns. Skjáskot/Stigamót

Er það rautt flagg að maður vilji ekki að maki sinn klæðist flegn­um eða þröng­um föt­um? Að manni finn­ist kyn­lífið búið um leið og einn fær full­næg­ingu? Eða að maður krefj­ist þess að mak­inn sinn sé ávallt með farða svo ekki sjá­ist í ból­ur?

Er það rautt flagg að maður vilji ekki að maki sinn klæðist flegn­um eða þröng­um föt­um? Að manni finn­ist kyn­lífið búið um leið og einn fær full­næg­ingu? Eða að maður krefj­ist þess að mak­inn sinn sé ávallt með farða svo ekki sjá­ist í ból­ur?

Sjúkást-her­ferð á veg­um Stíga­móta skoðar heil­brigð og óheil­brigð sam­bönd í gegn­um umræðuspilið Sjúk flögg. Spilið inni­held­ur yfir 190 full­yrðing­ar sem ým­ist eru rautt flagg, grænt flagg, bæði eða hvor­ugt.

Er rautt flagg að fylgj­ast með staðsetn­ing­unni þinni? Er rautt flagg að ég vilji ekki að þú far­ir á djammið án mín? Er grænt flagg að ég viti hvað þú vilt í bragðaref?

Full­yrðing­arn­ar eru byggðar á gögn­um Sjúkt­spjall, sem er nafn­laust net­spjall fyr­ir ungt fólk, og reynslu ráðgjafa Stíga­móta.

Von­in er að spilið fái fólk til að velta fyr­ir sér eig­in hegðun, hegðun annarra og heil­brigðum viðmiðum í sam­skipt­um, mörk­um og sam­bönd­um.

Ráðgjöf fagaðila um sam­bönd, sam­skipti og of­beldi

Sjúk ást er fræðslu- og for­varna­verk­efni gegn kyn­ferðisof­beldi á veg­um Stíga­móta. Mark­mið verk­efn­is­ins er að fræða ung­menni um mörk, samþykki og heil­brigð sam­bönd með það að leiðarljósi að koma í veg fyr­ir kyn­ferðisof­beldi áður en það er framið.

Sjúkt­spjall er nafn­laust net­spjall fyr­ir ung­menni 25 ára og yngri þar sem þau geta leitað ráðgjaf­ar fagaðila um sam­bönd, sam­skipti og of­beldi.

Spjallið opnaði í mars 2022, en árið 2024 höfðu yfir 230 spjöll átt sér stað. Helstu þemu spjall­anna voru kyn­ferðisof­beldi, meðvirkni og óör­yggi og óheil­brigð sam­bönd.

Sjúkt­spjall er opið frá kl. 20-22 á mánu­dags-, þriðju­dags- og miðviku­dags­kvöld­um og má finna á síðunni sjukast.is/​sjukt­spjall/.

Sam­sett mynd/​Aðsend

Hafa rætt op­in­skátt um mörk og sam­skipti

Eins og tíðkast hef­ur und­an­far­in ár hafa Stíga­mót dreift vegg­spjöld­um og fræðslu­efni til fé­lags­miðstöðva og fram­halds­skóla. Að þessu sinni var spilið Sjúk flögg einnig sent og hef­ur það fengið mjög góðar und­ir­tekt­ir. Ungt fólk hef­ur rætt op­in­skátt um mörk og sam­skipti, en spilið er mjög góð kveikja fyr­ir slík­ar umræður.

Spilið, vegg­spjöld Sjúkást 2025 og fræðslu­efni má finna á sjukast.is.

Mynd­bönd verða birt á sam­fé­lags­miðlum Sjúkást þar sem þau Ólaf­ur Jó­hann, Sig­ur­laug Birna, Katrín Myrra, Dj Gugga, Tomm­ispoons, Al­ex­and­er Óli, May Sig­ur­jóns, Erika Nótt og Guðjón Smári spila Sjúk flögg og ræða sam­bönd og sam­skipti.

Stíga­mót hvet­ur alla til að fylgj­ast með sam­fé­lags­miðlum Sjúkást, kíkja inn á sjukast.is og næla sér í spilið Sjúk flögg.

mbl.is