Örlítið hefur dregið úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga í dag þó enn mælist skjálftar í norðanverðum kvikuganginum. Mælingar benda til þess að landris sé hafið að nýju á svæðinu.

Tæp vika er nú liðin frá því áttunda eldgosið hófst á Sundhnúkagígaröðinni síðan goshrinan þar hófst í desember 2023. Þetta var stysta eldgosið í hrinunni en það stóð yfir í um sex klukkustundir.
Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni, segir að um 70 skjálftar hafi mælst í dag, sem virðist stefna í örlitla fækkun frá gærdeginum þegar þeir mældust 120 talsins.
Flestir þessara skjálfta hafa orðið í kvikuganginum en einnig hafa gikkskjálftar gert vart við sig við Kleifarvatn, Reykjanestá og Eldey. Gikkskjálfti 3 að stærð mældist við Eldey um kl. 14 í dag.