Sveiflur á mörkuðum vegna upplýsingaóreiðu

Sveiflur á mörkuðum vegna upplýsingaóreiðu

Eftir að hlutabréfaverð lækkuðu verulega við opnun markaða í morgun í Bandaríkjunum byrjuðu helstu vísitölur að ná sér á sama stað og fyrir opnun markaða, vegna fregna um að mögulega væri verið að fresta tollunum. Nú fyrir skömmu staðfesti Hvíta húsið að um rangar fréttir væri að ræða og þá byrjuðu hlutabréfaverð að lækka aftur.

Sveiflur á mörkuðum vegna upplýsingaóreiðu

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 7. apríl 2025

Það er nóg að gera á Wall Street.
Það er nóg að gera á Wall Street. AFP/Michael M. Santiago

Eft­ir að hluta­bréfa­verð lækkuðu veru­lega við opn­un markaða í morg­un í Banda­ríkj­un­um byrjuðu helstu vísi­töl­ur að ná sér á sama stað og fyr­ir opn­un markaða, vegna fregna um að mögu­lega væri verið að fresta toll­un­um. Nú fyr­ir skömmu staðfesti Hvíta húsið að um rang­ar frétt­ir væri að ræða og þá byrjuðu hluta­bréfa­verð að lækka aft­ur.

Óstaðfest­ar frétt­ir bár­ust af því að Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti væri að íhuga að fresta gildis­töku um­fangs­mik­illa tolla.

Kevin Has­sett, efna­hags­ráðgjafi Hvíta húss­ins, mætti í viðtal á Fox News fyr­ir skömmu þar sem hann var spurður hvort að Trump myndi íhuga að veita 90 daga frest áður en um­fangs­mikl­ir toll­ar taka gildi á miðnætti.

Ekki rétt að gildis­töku verði frestað

Has­sett virt­ist ekki úti­loka það í viðtal­inu en sagði samt að Trump myndi gera það sem hann vildi. Í kjöl­farið byrjuðu hluta­bréfa­verð að hækka veru­lega.

Hvíta húsið hef­ur nú lýst því yfir að frétt­ir um að það sé verið að íhuga 90 daga frest séu „rang­ar.“

Verð á hluta­bréf­um eru því aft­ur byrjuð að lækka.

Bloom­berg

Wall Street Journal

mbl.is