Varpi ljósi á öryggisbresti ráðuneytisins

Varpi ljósi á öryggisbresti ráðuneytisins

Ólöf Björnsdóttir, fyrrverandi tengdamóðir Eiríks Ásmundssonar, barnsföður Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, furðar sig á vinnubrögðum forsætisráðuneytisins sem hún segir varpa ljósi á öryggisbresti þar innanhúss. 

Varpi ljósi á öryggisbresti ráðuneytisins

Ásthildur Lóa segir af sér | 7. apríl 2025

Kristrún Frostadóttir og Ásthildur Lóa Þórsdóttir.
Kristrún Frostadóttir og Ásthildur Lóa Þórsdóttir. mbl.is/samsett mynd

Ólöf Björns­dótt­ir, fyrr­ver­andi tengda­móðir Ei­ríks Ásmunds­son­ar, barns­föður Ásthild­ar Lóu Þórs­dótt­ur, fyrr­ver­andi mennta- og barna­málaráðherra, furðar sig á vinnu­brögðum for­sæt­is­ráðuneyt­is­ins sem hún seg­ir varpa ljósi á ör­ygg­is­bresti þar inn­an­húss. 

Ólöf Björns­dótt­ir, fyrr­ver­andi tengda­móðir Ei­ríks Ásmunds­son­ar, barns­föður Ásthild­ar Lóu Þórs­dótt­ur, fyrr­ver­andi mennta- og barna­málaráðherra, furðar sig á vinnu­brögðum for­sæt­is­ráðuneyt­is­ins sem hún seg­ir varpa ljósi á ör­ygg­is­bresti þar inn­an­húss. 

Hún set­ur spurn­inga­merki við það að sím­töl sem ber­ist ráðuneyt­inu séu ekki hljóðrituð.

Þetta kem­ur fram í aðsendri grein á Vís­ir.is.

„Það ligg­ur fyr­ir að ég hringdi í for­sæt­is­ráðuneytið. Það gerði ég í þeim til­gangi að óska eft­ir upp­lýs­ing­um um hvort farið væri með er­indi sem þangað ber­ast í gegn­um tölvu­póst sem trúnaðar­mál. Svarið var já. Ég vildi að það væri al­gjör­lega ör­uggt og spurði aft­ur, því ég vildi ekki að þess­ar upp­lýs­ing­ar færu um borg og bý. Aft­ur staðfesti starfsmaður­inn það. Sím­talið var fjög­urra mín­útna langt - hvað annað átti ég að ræða í þess­ar fjór­ar mín­út­ur við starfs­mann í sím­svör­un?“ seg­ir Ólöf meðal ann­ars í grein­inni.

Ráðherra spurði aldrei

For­sæt­is­ráðherra hafi svo sent fjöl­miðlum yf­ir­lýs­ingu þar sem því var hafnað að trúnaði hafi verið lofað. Seg­ir hún ráðherra kosið að taka ekki fram að sím­töl til ráðuneyt­is­ins séu ekki hljóðrituð, líkt og hún hafi síðar kom­ist að.

„Ráðherr­ann spurði mig aldrei út í þetta sím­tal, held­ur aðeins starfs­mann Umbra, sem sinn­ir sím­svör­un fyr­ir stjórn­sýslu lands­ins. Sann­leik­ur­inn hentaði ráðherr­an­um ekki í þessu máli. Það má líka setja stórt spurn­inga­merki við að eðli­leg ör­ygg­is­ráðstöf­un líkt og hljóðrit­un sím­tala sé ekki til staðar hjá ráðuneyt­um lands­ins.“

Aðstoðarmaður for­sæt­is­ráðherra hafi svo af­hent barna­málaráðherra upp­lýs­ing­ar um er­indi henn­ar og umkvört­un, auk per­sónu­upp­lýs­inga.

„Um það er ekki deilt. Enda ligg­ur fyr­ir að barna­málaráðherra bæði þrá­hringdi í mig og mætti heim til mín að kvöld­lagi, óboðin,“ seg­ir Ólöf.

Var ekki að ganga er­inda neins

„Ekk­ert af þessu hefði gerst ef for­sæt­is­ráðherra hefði ekki brugðist í þessu máli,” seg­ir hún jafn­framt.

Þá tek­ur Ólöf fram að hún hafi upp á sitt ein­dæmi ákveðið að senda er­indi á for­sæt­is­ráðuneytið um for­sögu Ásthild­ar Lóu og upp á eins­dæmi hafi hún sent sama er­indi á frétta­mann sem hún treysti.

Það hafi hún gert eft­ir að ráðuneytið hafnaði henni um áheyrn.

„Ég var ekki að ganga er­inda eins eða neins eins og ít­rekað hef­ur verið haldið fram á sam­fé­lags­miðlum.“

mbl.is