Útsvar vegna strandveiða ekki þekkt

Strandveiðar | 8. apríl 2025

Útsvar vegna strandveiða ekki þekkt

Atvinnuvegaráðuneytið býr ekki yfir upplýsingum um hverjar tekjur sveitarfélaga eru af útsvari strandveiðileyfishafa vegna strandveiða.

Útsvar vegna strandveiða ekki þekkt

Strandveiðar | 8. apríl 2025

Atvinnuvegaráðuneytið kveðst ekki geta svarað því hve mikið var greitt …
Atvinnuvegaráðuneytið kveðst ekki geta svarað því hve mikið var greitt í útsvar vegna strandveiða árin 2016 til 2024. mbl.is/Þorgeir

At­vinnu­vegaráðuneytið býr ekki yfir upp­lýs­ing­um um hverj­ar tekj­ur sveit­ar­fé­laga eru af út­svari strand­veiðileyf­is­hafa vegna strand­veiða.

At­vinnu­vegaráðuneytið býr ekki yfir upp­lýs­ing­um um hverj­ar tekj­ur sveit­ar­fé­laga eru af út­svari strand­veiðileyf­is­hafa vegna strand­veiða.

Þetta má lesa úr svari Hönnu Katrín­ar Friðriks­son­ar at­vinnu­vegaráðherra við fyr­ir­spurn­ar Vil­hjálms Árna­son­ar þing­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins.

Vil­hjálm­ur spurði hve mikl­um strand­veiðiafla var landað árin 2016 til 2024 sund­urliðað eft­ir sveit­ar­fé­lög­um og um hversu marg­ir strand­veiðibát­ar voru gerðir út í viðkom­andi sveit­ar­fé­lög­um.

Vilhjálmur Árnason.
Vil­hjálm­ur Árna­son. mbl.is/​Sig­urður Bogi

Þá spurði Vil­hjálm­ur einnig hversu háar út­svars­greiðslur strand­veiðileyf­is­hafa vegna strand­veiða árin 2016 til 2024 voru. Óskaði hann eft­ir upp­lýs­ing­un­um sund­urliðað eft­ir sveit­ar­fé­lög­um auk þess sem var beðið um miðgildi sem og efri og neðri fjórðungs­mörk.

„Mál­efna­svið sem teng­ist lög­um um tekju­stofna sveit­ar­fé­laga heyr­ir ekki und­ir at­vinnu­vegaráðuneytið og því er eng­ar upp­lýs­ing­ar um út­svars­greiðslur að finna í ráðuneyt­inu né í und­ir­stofn­un­um þess,“ seg­ir í svari at­vinnu­vegaráðherra.

Mest­um afla landað fyr­ir Vest­an

Árin 2016 til 2024 var mest­um strand­veiðiafla landað í Vest­ur­byggð og nam afl­inn 9.325 tonn­um. Á eft­ir fylg­ir Snæ­fells­bær með 8.803 tonn og svo Ísa­fjarðarbær með 7.971 tonn.

Á síðasta ári tóku 763 bát­ar þátt í strand­veiðum og hafa þeir ekki verið fleiri á tíma­bil­inu. Voru þetta sex bát­um fleiri en árið á und­an og 45 bát­um fleiri en 2022. Fæst­ir voru þeir 2018 þegar aðeins 557 bát­ar voru gerðir út á strand­veiðar.

mbl.is