Engu svarað um útsvarsgreiðslur

Strandveiðar | 10. apríl 2025

Engu svarað um útsvarsgreiðslur

Atvinnuvegaráðherra gat engu svarað um útsvarsgreiðslur handhafa strandveiðileyfa, en spurt var á Alþingi hve háar útsvarsgreiðslur strandveiðimenn hefðu innt af hendi til sveitarfélaga árin 2016 til 2024.

Engu svarað um útsvarsgreiðslur

Strandveiðar | 10. apríl 2025

Ráðuneytið veit ekkert um útsvar strandveiðimanna.
Ráðuneytið veit ekkert um útsvar strandveiðimanna. mbl.is/Alfons

At­vinnu­vegaráðherra gat engu svarað um út­svars­greiðslur hand­hafa strand­veiðileyfa, en spurt var á Alþingi hve háar út­svars­greiðslur strand­veiðimenn hefðu innt af hendi til sveit­ar­fé­laga árin 2016 til 2024.

At­vinnu­vegaráðherra gat engu svarað um út­svars­greiðslur hand­hafa strand­veiðileyfa, en spurt var á Alþingi hve háar út­svars­greiðslur strand­veiðimenn hefðu innt af hendi til sveit­ar­fé­laga árin 2016 til 2024.

Er því borið við að mál­efna­svið sem teng­ist lög­um um tekju­stofna sveit­ar­fé­laga heyri ekki und­ir at­vinnu­vegaráðuneytið og því eng­ar upp­lýs­ing­ar um út­svars­greiðslur að finna á þeim bæn­um.

„Ég lagði fram fyr­ir­spurn­ina til þess að fá fram upp­lýs­ing­ar um áhrif, í þessu til­felli af strand­veiðum, á byggðir lands­ins og at­vinnu­vegaráðuneyt­inu var það um megn að afla sér upp­lýs­inga um það og þeirra gagna sem málið varða,“ seg­ir Vil­hjálm­ur Árna­son alþing­ismaður Sjálf­stæðis­flokks­ins í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Skamm­ur frest­ur

„Þetta kom mér mjög á óvart þar sem ráðuneytið er að leggja til breyt­ing­ar á ýms­um lög­um sem varða sjáv­ar­út­veg, þ.m.t. á strand­veiðikerf­inu, eign­ar­haldi í sjáv­ar­út­vegi, skil­grein­ing­um á tengd­um aðilum í sjáv­ar­út­vegi og veiðigjöld­un­um, sem hafa munu mik­il áhrif á sjáv­ar­út­veg­inn og byggðir lands­ins þar með,“ seg­ir Vil­hjálm­ur.

„Það hafa verið gerðar at­huga­semd­ir af full­trú­um sjáv­ar­byggða í land­inu við það hve skamm­ur frest­ur er gef­inn til um­sagna um veiðigjalda­frum­varpið og kvartað er yfir skorti á gögn­um. Þeir fá ekki tíma til að meta áhrif­in af þessu á sín­ar byggðir og það er ekk­ert gert með það hjá stjórn­völd­um,“ seg­ir hann.

Nán­ari um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag. Einnig má nálg­ast hana án end­ur­gjalds í Mogg­an­um, nýju appi Morg­un­blaðsins og mbl.is.

mbl.is