Erivo fækkaði fötum fyrir plötuumslagið

Poppkúltúr | 10. apríl 2025

Erivo fækkaði fötum fyrir plötuumslagið

Enska leik- og söngkonan Cynthia Erivo skilur lítið eftir fyrir ímyndunaraflið á plötuumslagi nýjustu breiðskífu hennar, titluð I Forgive You.

Erivo fækkaði fötum fyrir plötuumslagið

Poppkúltúr | 10. apríl 2025

Cynthia Erivo hefur átt afar mikilli velgengni að fagna síðustu …
Cynthia Erivo hefur átt afar mikilli velgengni að fagna síðustu mánuði og hreppti meðal annars tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í Wicked. Ljósmynd/Theo Wargo

Enska leik- og söng­kon­an Cynt­hia Eri­vo skil­ur lítið eft­ir fyr­ir ímynd­un­ar­aflið á plötu­um­slagi nýj­ustu breiðskífu henn­ar, titluð I Forgi­ve You.

Enska leik- og söng­kon­an Cynt­hia Eri­vo skil­ur lítið eft­ir fyr­ir ímynd­un­ar­aflið á plötu­um­slagi nýj­ustu breiðskífu henn­ar, titluð I Forgi­ve You.

Eri­vo, sem sló ræki­lega í gegn í hlut­verki grænu norn­ar­inn­ar Elp­höbu í söngv­amynd­inni Wicked á síðasta ári, frum­sýndi um­slagið á In­sta­gram-síðu sinni fyrr í dag og er óhætt að segja að það hafi vakið mikla lukku hjá aðdá­end­um henn­ar.

Á mynd­inni er Eri­vo alls­ber, með stóra hvíta vængi á bak­inu og í glær­um stíg­vél­um með him­in­há­um hæl­um.

Fjöl­marg­ar Hollywood-stjörn­ur hafa ritað at­huga­semd­ir við færslu Eri­vo, þar á meðal leik­kon­urn­ar Florence Pugh, Na­omi Watts og Yvette Nicole Brown sem halda varla vatni yfir þess­ari ein­stak­lega fal­legu ljós­mynd.

I Forgi­ve You er önn­ur breiðskífa hinn­ar 38 ára gömlu Eri­vo. Plat­an er vænt­an­leg þann 6. júní næst­kom­andi.



mbl.is