Komin í form örfáum mánuðum eftir fæðingu

Instagram | 14. apríl 2025

Komin í form örfáum mánuðum eftir fæðingu

Gypsy Rose Blanchard hefur misst hátt í 12 kíló frá því að frumburður hennar og Ken Urker, stúlka sem hlaut nafnið Aurora Raina, kom í heiminn þann 28. desember síðastliðinn.

Komin í form örfáum mánuðum eftir fæðingu

Instagram | 14. apríl 2025

Gypsy Rose Blanchard.
Gypsy Rose Blanchard. Skjáskot/Instagram

Gyp­sy Rose Blanch­ard hef­ur misst hátt í 12 kíló frá því að frumb­urður henn­ar og Ken Ur­ker, stúlka sem hlaut nafnið Aur­ora Raina, kom í heim­inn þann 28. des­em­ber síðastliðinn.

Gyp­sy Rose Blanch­ard hef­ur misst hátt í 12 kíló frá því að frumb­urður henn­ar og Ken Ur­ker, stúlka sem hlaut nafnið Aur­ora Raina, kom í heim­inn þann 28. des­em­ber síðastliðinn.

Blanch­ard, sem hlaut tíu ára fang­els­is­dóm fyr­ir að myrða móður sína árið 2015, sýndi fylgj­end­um sín­um á In­sta­gram þyngd­artap sitt á sunnu­dag og deildi „fyr­ir og eft­ir mynd­um“ af sér þar sem sjá má mun­inn. 

Blanch­ard losnaði úr fang­elsi eft­ir átta ár á bak við lás og slá síðla des­em­ber 2023 og skildi við eig­in­mann sinn til tveggja ára, Ryan S. And­er­son, í apríl í fyrra. Ekki leið á löngu þar til hún sást með fyrr­ver­andi kær­asta sín­um, Ken Ur­ker.

Parið greindi frá óléttutíðind­un­um aðeins ör­fá­um mánuðum seinna. 

Morðmálið vakti mikla undr­un og at­hygli vest­an­hafs á sín­um tíma og ekki síst fyr­ir þær sak­ir að móðir Blanch­ard var sögð hafa logið upp á dótt­ur sína og sagt hana þjást af fjölda kvilla, þá meðal ann­ars floga­veiki og hvít­blæði.

mbl.is