Hrafnhildur Hafsteins með í Ljóskureisunni

Sólarlandaferðir | 23. apríl 2025

Hrafnhildur Hafsteins með í Ljóskureisunni

Athafnakonan Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, eiginkona tónlistarmannsins Bubba Morthens, ferðaðist alla leið til Balí til að heimsækja dóttur sína, Ísabellu Ósk J. Morthens, og vinkonu hennar Birnu Mjöll Björgvinsdóttur. Ísabella og Birna hafa verið í heimsreisu síðan í febrúar, undir formerkjum Ljóskureisunnar á Instagram, og ætla að vera á faraldsfæti fram í byrjun júní.

Hrafnhildur Hafsteins með í Ljóskureisunni

Sólarlandaferðir | 23. apríl 2025

Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, ásamt dóttur sinni Ísabellu Ósk og vinkonu hennar …
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, ásamt dóttur sinni Ísabellu Ósk og vinkonu hennar Birnu Mjöll. Hrafnhildur skrifar í færslu á Instagram að Diamond Beach sé ein sú fegursta sem hún hafi séð. Skjáskot/Instagram

At­hafna­kon­an Hrafn­hild­ur Haf­steins­dótt­ir, eig­in­kona tón­list­ar­manns­ins Bubba Mort­hens, ferðaðist alla leið til Balí til að heim­sækja dótt­ur sína, Ísa­bellu Ósk J. Mort­hens, og vin­konu henn­ar Birnu Mjöll Björg­vins­dótt­ur. Ísa­bella og Birna hafa verið í heims­reisu síðan í fe­brú­ar, und­ir for­merkj­um Ljós­kureis­unn­ar á In­sta­gram, og ætla að vera á far­alds­fæti fram í byrj­un júní.

Balí er eyja og hérað í Indó­nes­íu, en héraðinu fylgja einnig smá­eyj­arn­ar Nusa Penida, Nusa Lem­bong­an og Nusa Cen­ing­an. Héraðið er eitt helsta aðdrátt­ar­afl ferðamanna í allri Indó­nes­íu og er ferðaþjón­usta þar um 80% af lands­fram­leiðslunni. 

Eins og drottning í Balí-rólunni í Ubud.
Eins og drottn­ing í Balí-ról­unni í Ubud. Skjá­skot/​In­sta­gram

Hrafn­hild­ur dvaldi á Balí í tvær vik­ur og naut sól­ar­inn­ar og hvítra sand­stranda. Sam­an ferðuðust þær þrjár til staða eins og Ubud, Gili T, Nusa Penida og Uluwatu, líkt og seg­ir í In­sta­gram-færslu Ljós­kureis­unn­ar. Þá fóru þær á hina rómuðu Dem­ants­strönd, eða Diamond beach, á eyj­unni Nusa Penida.

Tekn­ar voru guðdóm­leg­ar mynd­ir af Hrafn­hildi í rauðum kjól með síðum slóða í Bali-ról­unni í Ubud. Ekki er annað hægt að sjá en að þær hafi notið dval­ar­inn­ar í botn.

mbl.is