17 ára söngkona lést af völdum heilablóðfalls

Poppkúltúr | 25. apríl 2025

17 ára söngkona lést af völdum heilablóðfalls

Söngkonan Karen Silva, best þekkt fyrir þátttöku sína í brasilísku útgáfunni af The Voice Kids, lést í gær, fimmtudag. Hún var 17 ára gömul.

17 ára söngkona lést af völdum heilablóðfalls

Poppkúltúr | 25. apríl 2025

Karen Silva.
Karen Silva. Skjáskot/Instagram

Söng­kon­an Kar­en Silva, best þekkt fyr­ir þátt­töku sína í bras­il­ísku út­gáf­unni af The Voice Kids, lést í gær, fimmtu­dag. Hún var 17 ára göm­ul.

Söng­kon­an Kar­en Silva, best þekkt fyr­ir þátt­töku sína í bras­il­ísku út­gáf­unni af The Voice Kids, lést í gær, fimmtu­dag. Hún var 17 ára göm­ul.

Silva, sem komst í undanúr­slit í hæfi­leika­keppn­inni árið 2020, lést á São João Bat­i­sta-sjúkra­hús­inu í Volta Redonda aðeins ör­fá­um dög­um eft­ir að hafa fengið heila­blóðfall.

„Kar­en var meira en bara efni­leg­ur listamaður, hún var tákn um vald­efl­ingu. Sér­stak­lega fyr­ir ung­ar svart­ar stúlk­ur sem fundu í henni inn­blást­ur og styrk til að láta drauma sína ræt­ast,“ sagði kynn­ing­ar­full­trúi söng­kon­unn­ar í sam­tali við The Mirr­or.

Silva var aðeins 12 ára göm­ul þegar hún heillaði dóm­ara og áhorf­end­ur upp úr skón­um með kraft­mik­illi söngrödd sinni.



mbl.is