Tatum og Williams opinbera ástarsambandið

Ný pör | 28. apríl 2025

Tatum og Williams opinbera ástarsambandið

Bandaríski leikarinn Channing Tatum og ástralska fyrirsætan Inka Williams hafa nú opinberað ástarsamband sitt á samfélagsmiðlum, en sögusagnir um meinta rómantík milli þeirra hafa verið á kreiki síðustu vikur og mánuði.

Tatum og Williams opinbera ástarsambandið

Ný pör | 28. apríl 2025

Channing Tatum og Inka Williams hafa nú opinberað samband sitt.
Channing Tatum og Inka Williams hafa nú opinberað samband sitt. Samsett mynd

Banda­ríski leik­ar­inn Chann­ing Tatum og ástr­alska fyr­ir­sæt­an Inka Williams hafa nú op­in­berað ástar­sam­band sitt á sam­fé­lags­miðlum, en sögu­sagn­ir um meinta róm­an­tík milli þeirra hafa verið á kreiki síðustu vik­ur og mánuði.

Williams, sem er 25 ára, deildi fal­leg­um mynd­um af par­inu í story á In­sta­gram-síðu sinni á laug­ar­dag, en til­efnið var 45 ára af­mæli leik­ar­ans.

Williams og Tatum eru sögð hafa kynnst í gegn­um sam­eig­in­leg­an vin aðeins ör­fá­um vik­um eft­ir að upp úr sam­bandi Tatum og leik­kon­unn­ar Zoë Kra­vitz slitnaði í októ­ber síðastliðnum.

Fyr­ir það átti leik­ar­inn í „haltu mér, slepptu mér“-sam­bandi með ensku söng­kon­unni Jessie J.

Tatum var kvænt­ur leik­kon­unni Jennu Dew­an, sem hann kynnt­ist við gerð kvik­mynd­ar­inn­ar Step Up árið 2006, á ár­un­um 2009 til 2018. Þau eiga eina dótt­ur, hina 12 ára gömlu Ever­ly.

Inka Williams deildi fallegri færslu í tilefni af afmæli Channing …
Inka Williams deildi fal­legri færslu í til­efni af af­mæli Chann­ing Tatum. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is