Fann ástina á ný eftir fráfall eiginmannsins

Poppkúltúr | 29. apríl 2025

Fann ástina á ný eftir fráfall eiginmannsins

Bandaríska sjónvarpskonan Amanda Kloots mætti ásamt kærasta sínum, tennisleikaranum Justin Gimelstob, á styrktarviðburð á vegum The Women’s Cancer Research Fund sem haldinn var á Beverly Hills-hótelinu í Los Angeles á mánudagskvöldið.

Fann ástina á ný eftir fráfall eiginmannsins

Poppkúltúr | 29. apríl 2025

Justin Gimelstob og Amanda Kloots voru glæsileg á rauða dreglinum.
Justin Gimelstob og Amanda Kloots voru glæsileg á rauða dreglinum. Ljósmynd/Leon Bennett

Banda­ríska sjón­varps­kon­an Am­anda Kloots mætti ásamt kær­asta sín­um, tenn­is­leik­ar­an­um Just­in Gi­mel­stob, á styrkt­ar­viðburð á veg­um The Women’s Cancer Rese­arch Fund sem hald­inn var á Bever­ly Hills-hót­el­inu í Los Ang­eles á mánu­dags­kvöldið.

Þetta er í fyrsta sinn sem parið geng­ur hönd í hönd niður rauða dreg­il­inn.

Kloots, 43 ára, og Gi­mel­stob, 48 ára, litu út fyr­ir að vera yfir sig ást­fang­in og tóku vart aug­un hvort af öðru allt kvöldið.

Sam­band þeirra er afar nýtt af nál­inni, að sögn Kloots, sem ræddi stutt­lega við blaðamann People á rauða dregl­in­um og sagðist vera afar ham­ingju­söm.

Kloots missti eig­in­mann sinn, Broadway-leik­ar­ann Nick Cor­dero, í júlí 2020, en leik­ar­inn lést af völd­um kór­ónu­veirunn­ar.

Sjón­varps­kon­an ræddi mjög op­in­skátt um veik­indi og dauða Cor­dero, bæði í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum, á sín­um tíma og viður­kenndi meðal ann­ars í viðtali við People síðastliðið haust að í einni heim­sókn henn­ar til miðils hefði hún fengið skila­boð að hand­an sem hvöttu hana til að finna ást­ina á ný.

mbl.is