Sláandi lík móður sinni

Poppkúltúr | 29. apríl 2025

Sláandi lík móður sinni

Hin 18 ára gamla Fiona Eve, dóttir bandarísku leikkonunnar Jennie Garth, sem er þúsaldarkynslóðinni vel kunn, og fyrrverandi eiginmanns hennar, leikarans Peter Facinelli, þykir sláandi lík móður sinni.

Sláandi lík móður sinni

Poppkúltúr | 29. apríl 2025

Jennie Garth ásamt dóttur sinni, Fionu Eve.
Jennie Garth ásamt dóttur sinni, Fionu Eve. Skjáskot/Instagram

Hin 18 ára gamla Fiona Eve, dótt­ir banda­rísku leik­kon­unn­ar Jennie Garth, sem er þús­ald­arkyn­slóðinni vel kunn, og fyrr­ver­andi eig­in­manns henn­ar, leik­ar­ans Peter Fac­inelli, þykir slá­andi lík móður sinni.

Hin 18 ára gamla Fiona Eve, dótt­ir banda­rísku leik­kon­unn­ar Jennie Garth, sem er þús­ald­arkyn­slóðinni vel kunn, og fyrr­ver­andi eig­in­manns henn­ar, leik­ar­ans Peter Fac­inelli, þykir slá­andi lík móður sinni.

Garth, sem gerði garðinn fræg­an í ung­lingaþáttaröðinni Bever­ly Hills, 90210, á ár­un­um 1990 til 2000, deildi fal­leg­um ljós­mynd­um af þeim mæðgum sem tekn­ar voru fyr­ir World’s Most Beautif­ul-tölu­blað tísku­tíma­rits­ins People á In­sta­gram-síðu sinni í fyrra­dag.

Færsl­an vakti fljótt mikla at­hygli net­verja, enda eru mæðgurn­ar nauðalík­ar í út­liti.

Marg­ir rituðu at­huga­semd­ir við mynd­irn­ar og minnt­ust á lík­indi mæðgn­anna, en flest­ir voru sam­mála um að stúlk­an væri eins og snýtt út úr nefi móður sinn­ar. Nokkr­ir voru þó ósam­mála og sögðu stúlk­una vera mun lík­ari föður sín­um. 

Garth og Fac­inelli, einna þekkt­ast­ur fyr­ir hlut­verk sitt í Twilig­ht-serí­unni, voru gift á ár­un­um 2001 til 2013 og eiga þrjár upp­komn­ar dæt­ur á ald­urs­bil­inu 18 til 27 ára.

View this post on In­sta­gram

A post shared by People Magaz­ine (@people)

View this post on In­sta­gram

A post shared by Jennie 🤍 (@jennieg­ar­th)

View this post on In­sta­gram

A post shared by People Magaz­ine (@people)



mbl.is