Samdráttur vestanhafs vegna tolla

Samdráttur vestanhafs vegna ofurtolla Trumps

Samdráttur mældist í bandarísku hagkerfi fyrsta fjórðung ársins sem markaði upphaf setu Donalds Trumps forseta á valdastóli. Birta fjölmiðlar vestanhafs fregnir af samdrættinum í dag og skýra hagfróðir menn með stórauknum innflutningi til Bandaríkjanna dagana og vikurnar áður en tollar forsetans gagnvart öllum öðrum ríkjum tóku gildi.

Samdráttur vestanhafs vegna ofurtolla Trumps

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 30. apríl 2025

Tollastríð Trumps við flest ríki heims skilaði sér í efnahagssamdrætti …
Tollastríð Trumps við flest ríki heims skilaði sér í efnahagssamdrætti fyrsta ársfjórðung hans á valdastóli. AFP

Sam­drátt­ur mæld­ist í banda­rísku hag­kerfi fyrsta fjórðung árs­ins sem markaði upp­haf setu Don­alds Trumps for­seta á valda­stóli. Birta fjöl­miðlar vest­an­hafs fregn­ir af sam­drætt­in­um í dag og skýra hag­fróðir menn með stór­aukn­um inn­flutn­ingi til Banda­ríkj­anna dag­ana og vik­urn­ar áður en toll­ar for­set­ans gagn­vart öll­um öðrum ríkj­um tóku gildi.

Sam­drátt­ur mæld­ist í banda­rísku hag­kerfi fyrsta fjórðung árs­ins sem markaði upp­haf setu Don­alds Trumps for­seta á valda­stóli. Birta fjöl­miðlar vest­an­hafs fregn­ir af sam­drætt­in­um í dag og skýra hag­fróðir menn með stór­aukn­um inn­flutn­ingi til Banda­ríkj­anna dag­ana og vik­urn­ar áður en toll­ar for­set­ans gagn­vart öll­um öðrum ríkj­um tóku gildi.

Dróst lands­fram­leiðsla þessa stærsta hag­kerf­is heims sam­an um 0,3 pró­sent á árs­grund­velli fyrsta fjórðung árs­ins í kjöl­far aukn­ing­ar um 2,4 pró­sent á of­an­verðu ári 2024, ef marka má bráðabirgðaút­reikn­inga viðskiptaráðuneyt­is Banda­ríkj­anna, nokkuð sem ræki­lega sting­ur í stúf við spár um 0,4 pró­senta aukn­ingu þenn­an fyrsta árs­fjórðung.

Birt­ust töl­urn­ar á 101. embætt­is­degi Trumps frá inn­setn­ingu hans 20. janú­ar að telja, en tolla­hót­an­ir for­seta frá því snemma árs ollu óðasölu á fjár­mála­mörkuðum sem skapaði glundroða sem ekki á sér hliðstæðu síðan í heims­far­aldr­in­um.

Sjaldn­ast af­drifa­rík­ar af­leiðing­ar

„Ekki er vana­legt að stefna rík­is­stjórn­ar færi með sér af­drifa­rík­ar breyt­ing­ar, sér­stak­lega ekki á fyrstu hundrað dög­um nýs for­seta,“ sagði Tara Sincla­ir, hag­fræðipró­fess­or við Geor­ge Washingt­on-há­skóla, við AFP-frétta­stof­una áður en töl­urn­ar voru gerðar heyr­umk­unn­ar og bætti því við eft­ir á að aug­ljóst væri að stór­felld­ar stefnu­breyt­ing­ar hefðu höggvið að rót­um banda­rísks efna­hags.

Þegar ljóst tók að verða í hvað stefndi nú fyrr í apríl til­kynnti Trump-stjórn­in um 90 daga hlé á hæstu inn­flutn­ing­stoll­um og lét þess í stað tíu pró­senta grunntoll nægja gagn­vart flest­um ríkj­um er sætt höfðu svim­andi tolla­hækk­un­um sam­kvæmt upp­haf­legri ákvörðun Trumps.

mbl.is