Seldi dýrasta hús í sögu Washington-ríkis

Poppkúltúr | 30. apríl 2025

Seldi dýrasta hús í sögu Washington-ríkis

Jeff Bezos, stofnandi Amazon og einn ríkasti maður í heimi, hefur selt glæsihýsi sitt í borginni Seattle í Washington-fylki.

Seldi dýrasta hús í sögu Washington-ríkis

Poppkúltúr | 30. apríl 2025

Lauren Sanchez og Jeff Bezos.
Lauren Sanchez og Jeff Bezos. Ljósmynd/AFP

Jeff Bezos, stofn­andi Amazon og einn rík­asti maður í heimi, hef­ur selt glæsi­hýsi sitt í borg­inni Seattle í Washingt­on-fylki.

Jeff Bezos, stofn­andi Amazon og einn rík­asti maður í heimi, hef­ur selt glæsi­hýsi sitt í borg­inni Seattle í Washingt­on-fylki.

Sölu­verðið var 63 millj­ón­ir banda­ríkja­dala, eða um níu millj­arðar ís­lenskra króna.

Húsið var ekki aug­lýst til sölu held­ur selt „í skúff­unni“ eins og sagt er.

Fast­eigna­kaup­in eru þau dýr­ustu í sögu Washingt­on-fylk­is, sam­kvæmt Pu­get Sound Bus­iness Journal.

Eign­in var keypt af Cay­an In­vest­ments LLC sem er í eigu sádi-ar­ab­íska viðskipta­manns­ins Ah­med Al­hatti.

Bezos græddi vel á söl­unni en sjálf­ur keypti hann húsið á 37,5 millj­ón­ir banda­ríkja­dala, eða tæpa fimm millj­arða ís­lenskra króna árið 2019, stuttu eft­ir skilnað hans við MacKenzie Scott.

Í dag er Bezos bú­sett­ur ásamt unn­ustu sinni, blaðakon­unni og rit­höf­und­in­um Lauren Sánchez, í sól­skins­borg­inni Miami.

View this post on In­sta­gram

A post shared by IG Mansi­ons (@ig_m­ansi­ons)

mbl.is