Setur af stað athugun á aukastörfum lögreglumanna

Gagnastuldur og njósnir PPP | 30. apríl 2025

Setur af stað athugun á aukastörfum starfandi lögreglumanna

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur sett af stað athugun á aukastörfum starfandi lögreglumanna í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringarþáttsins Kveiks í gær.

Setur af stað athugun á aukastörfum starfandi lögreglumanna

Gagnastuldur og njósnir PPP | 30. apríl 2025

Ljósmynd/Colourbox

Lög­reglu­stjór­inn á höfuðborg­ar­svæðinu hef­ur sett af stað at­hug­un á auka­störf­um starf­andi lög­reglu­manna í kjöl­far um­fjöll­un­ar frétta­skýr­ing­arþátts­ins Kveiks í gær.

Lög­reglu­stjór­inn á höfuðborg­ar­svæðinu hef­ur sett af stað at­hug­un á auka­störf­um starf­andi lög­reglu­manna í kjöl­far um­fjöll­un­ar frétta­skýr­ing­arþátts­ins Kveiks í gær.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni.

Í gær var m.a. greint frá því að varðstjóri hjá um­ferðardeild lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu væri grunaður um að hafa njósnað um fólk gegn greiðslu. Málið nær aft­ur til árs­ins 2012.

Málið sent strax til rík­is­sak­sókn­ara

„Þegar lög­reglu­stjóra varð kunn­ugt um efni um­fjöll­un­ar Kveiks í gær var málið sent þá þegar, að frum­kvæði embætt­is­ins, til meðferðar hjá embætti rík­is­sak­sókn­ara. Í beinu fram­haldi var viðkom­andi lög­reglumaður send­ur í leyfi á meðan rann­sókn þess fer fram.

Í til­efni þessa máls hef­ur embætti lög­reglu­stjór­ans á höfuðborg­ar­svæðinu jafn­framt sett af stað at­hug­un á auka­störf­um starf­andi lög­reglu­manna. Í gildi eru regl­ur um slíkt þar sem gert er ráð fyr­ir að sækja þurfi um sér­staka heim­ild til þess að sinna öðrum störf­um sam­hliða,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni. 

Mik­il­vægt að lög­regl­an njóti trausts

Þá seg­ir að embættið líti málið mjög al­var­leg­um aug­um.

„Afar mik­il­vægt er að lög­regl­an njóti trausts meðal borg­ar­anna til þess að hún geti rækt hlut­verk sitt. Skýr­ar kröf­ur eru gerðar til þess að störf lög­reglu séu unn­in af fag­mennsku og inn­an þeirra heim­ilda og reglna sem hún starfar eft­ir. Verði mis­brest­ur þar á er tekið á þeim mál­um af festu.

Að öðru leyti mun embættið ekki tjá sig um mál það sem nú er til meðferðar hjá rík­is­sak­sókn­ara.“

mbl.is