Standist ekki „skynsemisskoðun“

Ásthildur Lóa segir af sér | 30. apríl 2025

Standist ekki „skynsemisskoðun“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ítrekaði það á opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, þar sem fjallað var um meðferð for­sæt­is­ráðuneyt­is­ins á er­indi um per­sónu­legt mál­efni Ásthild­ar Lóu Þórsdóttur, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, að engar upplýsingar hefðu borist á milli ráðuneytanna eftir að fyrir lá hvert erindið var. 

Standist ekki „skynsemisskoðun“

Ásthildur Lóa segir af sér | 30. apríl 2025

Forsætisráðherra sat fyrir svörum á opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Forsætisráðherra sat fyrir svörum á opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. mbl.is/Karítas

Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra ít­rekaði það á opn­um fundi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar, þar sem fjallað var um meðferð for­sæt­is­ráðuneyt­is­ins á er­indi um per­sónu­legt mál­efni Ásthild­ar Lóu Þórs­dótt­ur, fyrr­ver­andi mennta- og barna­málaráðherra, að eng­ar upp­lýs­ing­ar hefðu borist á milli ráðuneyt­anna eft­ir að fyr­ir lá hvert er­indið var. 

Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra ít­rekaði það á opn­um fundi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar, þar sem fjallað var um meðferð for­sæt­is­ráðuneyt­is­ins á er­indi um per­sónu­legt mál­efni Ásthild­ar Lóu Þórs­dótt­ur, fyrr­ver­andi mennta- og barna­málaráðherra, að eng­ar upp­lýs­ing­ar hefðu borist á milli ráðuneyt­anna eft­ir að fyr­ir lá hvert er­indið var. 

Aðstoðar­menn hefðu skipst á upp­lýs­ing­um um málið þegar aðeins lá fyr­ir beiðni um fund með for­sæt­is­ráðherra, en þegar upp­lýs­ing­ar um er­indið lágu fyr­ir hafi orðið sú eðlis­breyt­ing að um það ríkti trúnaður, enda ljóst að það inni­hélt per­sónu­leg­ar og viðkvæm­ar upp­lýs­ing­ar.

Ólöf Björns­dótt­ir hafði þá sent for­sæt­is­ráðuneyt­inu upp­lýs­ing­ar um að Ásthild­ur Lóa Þórs­dótt­ir, fyrr­ver­andi mennta- og barna­málaráðherra, hefði eign­ast barn með 16 ára dreng þegar hún sjálf var 23 ára, fyr­ir 35 árum. En Ólöf er fyrr­ver­andi tengda­móðir barns­föður Ásthild­ar.

Seg­ist varla trúa Kristrúnu

Kristrún full­yrti einnig og ít­rekaði að hún hefði ekki rætt við Ásthildi um er­indið fyrr en dag­inn sem fjallað var um það í fjöl­miðlum, eða viku eft­ir að upp­lýs­ing­ar um er­indið bár­ust. Það hefði verið metið svo af hálfu for­sæt­is­ráðuneyt­is­ins að ekki hefði verið rétt að bera upp­lýs­ing­arn­ar strax und­ir Ásthildi til að sann­reyna þær. Það hefði enn verið til skoðunar hjá ráðuneyt­inu hvernig bregðast ætti við mál­inu þegar það rataði í fjöl­miðla.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokks­ins, sagðist á fund­in­um varla trúa því að for­sæt­is­ráðherra hafi ekki rætt strax við mennta- og barna­málaráðherra þegar lá fyr­ir hvert er­indið var.

Enda hafi for­sæt­is­ráðherra og fyrr­ver­andi mennta- og barna­málaráðherra hist á fundi þar sem fjallað var um fjár­mála­áætl­un dag­inn eft­ir að upp­lýs­ing­ar um er­indið bár­ust for­sæt­is­ráðuneyt­inu. Sagði Bergþór það ekki stand­ast „skyn­sem­is­skoðun“ að Kristrún hefði ekki rætt við Ásthildi, til að mynda eft­ir þann fund.

„Ég bara trúi því varla að þú haf­ir átt fund með mennta­málaráðherra dag­inn eft­ir, um fjár­mála­áætl­un, gef­um okk­ur að það hafi verið fund­ar­efnið, en ekki beðið hana að sitja eft­ir í stutt spjall,“ sagði Bergþór og spurði svo hvort það hefði virki­lega verið þannig að hún hafi ekki minnst á það einu orði við Ásthildi.

Hafi þurft að flýta sér hægt í mál­inu

Kristrún sagði að á þeim tíma­punkti hefðu legið fyr­ir óstaðfest­ar viðkvæm­ar upp­lýs­ing­ar frá borg­ara úti í bæ, en ein­mitt þá hafi það verið álitið sem svo að það ríkti ákveðin þagn­ar­skylda um málið.

„Vegna þess var það ekki fyrsta skref í mál­inu að hafa sam­band við ráðherra og ræða þetta viðkvæma mál við hana. Það var ein­fald­lega ekki búið að taka af­stöðu til þess með hvaða hætti væri eðli­legt að vinna úr þessu máli.“

Það hafi þurft að flýta sér hægt í mál­inu, enda hafi ekki legið fyr­ir hvort upp­lýs­ing­arn­ar væru rétt­ar og sú sem hafði sam­band hafi ekki verið aðili máls­ins.

„Þú tek­ur ekki bara upp sím­ann og fund­ar með aðila eða ráðherra um efni máls, ein­mitt vegna þess að það var vilji til að fara gæti­lega til að virða trúnað í þessu til­viki, þegar það ligg­ur fyr­ir að við vit­um er­indi máls­ins. Þá var ekki farið með málið beint til ráðherra.“

Sagði hún að vissu­lega hefði á ein­hverj­um tíma­punkti komið að slíku sam­tali, en tím­inn væri aðal­atriðið. Ekki hefði verið búið að taka ákvörðun um það með hvaða hætti það væri hægt að virða það við þenn­an ein­stak­ling að þess­ar upp­lýs­ing­ar væru komn­ar fram.

mbl.is