Telur upplýsingum ekki hafa verið lekið

Ásthildur Lóa segir af sér | 30. apríl 2025

Telur upplýsingum ekki hafa verið lekið

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, segist ekki vita til þess að upplýsingar um eðli erindis þess sem barst forsætisráðuneytinu og vörðuðu þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, hafi lekið til ráðherrans úr forsætisráðuneytinu.

Telur upplýsingum ekki hafa verið lekið

Ásthildur Lóa segir af sér | 30. apríl 2025

Kristrún Frostadóttir sat fyrir svörum í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins …
Kristrún Frostadóttir sat fyrir svörum í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins í dag. mbl.is/Karítas

Kristrún Frosta­dótt­ir, for­sæt­is­ráðherra, seg­ist ekki vita til þess að upp­lýs­ing­ar um eðli er­ind­is þess sem barst for­sæt­is­ráðuneyt­inu og vörðuðu þáver­andi mennta- og barna­málaráðherra, Ásthildi Lóu Þórs­dótt­ur, hafi lekið til ráðherr­ans úr for­sæt­is­ráðuneyt­inu.

Kristrún Frosta­dótt­ir, for­sæt­is­ráðherra, seg­ist ekki vita til þess að upp­lýs­ing­ar um eðli er­ind­is þess sem barst for­sæt­is­ráðuneyt­inu og vörðuðu þáver­andi mennta- og barna­málaráðherra, Ásthildi Lóu Þórs­dótt­ur, hafi lekið til ráðherr­ans úr for­sæt­is­ráðuneyt­inu.

„Ég veit ekki til þess [að upp­lýs­ing­um hafi verið lekið]. Ég veit ekki hvernig hún komst yfir þær upp­lýs­ing­ar um hvaða tengsl þessi kona hafði við hana. Það er bara hið hrein­skilna svar. Það eru auðvitað ýms­ar leiðir í okk­ar sam­fé­lagi til að afla sér upp­lýs­inga ef fólk hef­ur áhuga á því. En það ligg­ur al­veg fyr­ir að það voru eng­in sam­skipti um þetta mál við mennta­málaráðherra eða ein­hvern sem var að starfa þarna fyr­ir hana eft­ir að eðli er­ind­is­ins lá fyr­ir,“ seg­ir Kristrún.

Fékk fyrst upp­lýs­ing­ar 13. mars

Kristrún fékk að sögn fyrst upp­lýs­ing­ar um eðli er­ind­is Ólaf­ar Björns­dótt­ur, sem vildi eiga við hana fund, fimmtu­dag­inn 13. mars. Í kjöl­far þess að fyr­ir lá hversu viðkvæmt málið væri seg­ir hún eng­in sam­skipti hafa átt sér stað milli ráðherr­anna, eða aðstoðarmanna þeirra, um málið fyrr en 20. mars, það er viku síðar, þegar fjöl­miðlar voru komn­ir á snoðir um málið.

Áður en eðli er­ind­is­ins lá fyr­ir hafði Ólöf, sem er fyrr­ver­andi tengda­móðir barns­föður Ásthild­ar Lóu, óskað eft­ir fundi við for­sæt­is­ráðherra til að ræða mál sem snerti Ásthildi Lóu.

Fyr­ir ligg­ur að þegar nafn og aðrar per­sónu­upp­lýs­ing­ar Ólaf­ar voru born­ar und­ir Ásthildi Lóu kannaðist hún ekki við kon­una. Engu að síður virðist hún hafa orðið efni er­ind­is­ins áskynja með ein­hverj­um hætti áður en málið rataði í fjöl­miðla, enda hringdi hún margsinn­is og mætti heim til Ólaf­ar dag­ana 16. - 19. mars, það er eft­ir að upp­lýs­ing­ar um er­indið höfðu borist for­sæt­is­ráðuneyt­inu en áður en fjöl­miðlar fóru að spyrj­ast fyr­ir um málið.

Funduðu 14. mars

Á opn­um fundi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar (SEN), þar sem fjallað var um meðferð for­sæt­isráðuneyt­is­ins á er­indi Ólaf­ar, kom fram að Kristrún og Ásthild­ur Lóa sátu sam­an fund föstu­dag­inn 14. mars, degi eft­ir að Kristrún var upp­lýst um hvers eðlis málið væri.

Á fundi SEN sagði Kristrún fyrr­nefnd­an fund hafa varðað fjár­mála­áætl­un rík­is­stjórn­ar­inn­ar og að er­indi Ólaf­ar hafi ekki verið rætt.

Bergþór Ólason, nefnd­armaður fyr­ir hönd Miðflokks­ins, dró það í efa á fundi SEN að málið hafi ekki komið til tals eft­ir að for­sæt­is­ráðherra varð þess áskynja hvers eðlis er­indið væri.

mbl.is