Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins sagðist á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fyrr í dag vart trúa því að forsætisráðherra hefði ekki rætt strax við mennta- og barnamálaráðherra þegar lá fyrir hvert erindið var.

Í samtali við blaðið að loknum fundi sagði hann það ekki traustvekjandi að fyrst nú væri greint frá fundi forsætisráðherra með Ásthildi Lóu Þórsdóttur þáverandi mennta- og barnamálaráðherra föstudaginn 14. mars, sem ekki birtist í tímalínu forsætisráðuneytisins yfiir atburði og samskipti frá því að fundarbeiðni kom fyrst til ráðuneytisins vegna málsins og þangað til Ásthildur Lóa sagði af sér.
„Það stenst enga skynsemisskoðun að þá hafi ráðherrarnir tveir átt fund í forsætisráðuneytinu en þetta mál ekki verið nefnt á nafn,“ segir Bergþór.
„Það er einhver ósögð saga þarna.“
Hann segir forsætisráðherra hafa gengið „býsna hart fram“ í því að skilja við málið þannig að Ólöf Björnsdóttir, það er konan sem sendi forsætisráðuneytinu erindið er varðaði Ásthildi Lóu, væri að segja ósatt um beiðni sína um trúnað í símasamskiptum sínum.
„Það liggur fyrir að það eru engar staðfestingar í þeim efnum sem hafa verið lagðar fram eða mögulegt er að leggja fram í ljósi þess að símtölin eru ekki tekin upp,“ segir Bergþór.
Bergþór segir ennfremur „ábyrgðarflóttann“ hafa verið býsna áberandi hjá forsætisráðherra í málinu.
„Svona í ljósi þess að það mál sem við stöndum nú frammi fyrir er til að miklu leyti tilkomið vegna upplýsinga sem bárust frá forsætisráðuneytinu til menntamálaráðherra. Mál sem að bréfritari hafði réttmætar væntingar um trúnað gagnvart.“
Málið hafi orðið hápólitískt strax með þeim viðbrögðum sem að forsætisráðherra og hennar fólk sýndi í málinu.
„Það liggur núna fyrir að menn hafa orðið margsaga um það hvernig upplýsingarnar fóru á milli. Það liggur fyrir að þessum upplýsingum var deilt áfram af aðstoðarmanni forsætisráðherra.
En það var athyglisvert að Kristrún lítur þannig á að samskipti aðstoðarmanna séu í raun samskipti ráðherranna sjálfra, þannig að það þarf að líta á það sem svo að upplýsingarnar fari með beinum hætti frá forsætisráðherra sjálfum til menntamálaráðherra sjálfs. Sem að ýtir síðan þessari atburðarás af stað sem að sem við höfum orðið vitni að síðan.“