Undirrita samkomulag um nýtingu auðlinda

Úkraína | 30. apríl 2025

Undirrita samkomulag um nýtingu auðlinda

Bandaríkin og Úkraína hafa komist að samkomulagi um nýtingu auðlinda Úkraínu til endurreisnar landsins. 

Undirrita samkomulag um nýtingu auðlinda

Úkraína | 30. apríl 2025

Trump og Selenskí Úkraínuforseti ræddust við í Vatíkaninu í síðustu …
Trump og Selenskí Úkraínuforseti ræddust við í Vatíkaninu í síðustu viku. AFP/Úkraínska utanríkisráðuneytið

Banda­rík­in og Úkraína hafa kom­ist að sam­komu­lagi um nýt­ingu auðlinda Úkraínu til end­ur­reisn­ar lands­ins. 

Banda­rík­in og Úkraína hafa kom­ist að sam­komu­lagi um nýt­ingu auðlinda Úkraínu til end­ur­reisn­ar lands­ins. 

Til stóð upp­haf­lega að und­ir­rita sam­komu­lagið í lok fe­brú­ar, en það frestaðist eft­ir um­deild­an fund Selenskís Úkraínu­for­seta í Hvíta hús­inu með Trump Banda­ríkja­for­seta og JD Vance vara­for­seta. 

Banda­ríkja­stjórn krafðist þess í viðræðum ríkj­anna að fá einka­rétt á nýt­ingu auðlinda Úkraínu, og væri litið á það sem end­ur­greiðslu fyr­ir þann stuðning sem Banda­ríkja­menn hafa veitt Úkraínu­mönn­um til þess að verj­ast inn­rás Rússa. Þóttu fyrstu samn­ings­drög Banda­ríkja­manna halla nokkuð á Úkraínu­menn.

Úkraín­u­stjórn seg­ir hins veg­ar að hið und­ir­ritaða sam­komu­lag tryggi lyk­il­hags­muni lands­ins, þar á meðal séu yf­ir­ráð Úkraínu­manna yfir auðlind­um sín­um tryggð, en þar eru á meðal sjald­gæf­ir jarðmálm­ar, sem skipta sí­fellt meiru máli í fram­leiðslu há­tækniiðnaðar.

Þá mun sam­komu­lagið tryggja fjár­fest­ing­ar Banda­ríkja­manna í Úkraínu eft­ir að Úkraínu­stríðinu lýk­ur og aðstoða þannig við end­ur­reisn lands­ins. 

Skýr skila­boð til Rúss­lands

Scott Bessent, fjár­málaráðherra Banda­ríkj­anna, sagði eft­ir und­ir­rit­un sam­komu­lags­ins að það sýndi að báðar þjóðir vildu tryggja var­an­leg­an frið og hag­sæld Úkraínu. 

„Þetta sam­komu­lag send­ir skýr skila­boð til Rúss­lands að Trump-stjórn­in stend­ur heils­hug­ar að friðarferli sem miðar að því að frjáls, full­valda og vel­meg­andi Úkraína haldi velli til lengri tíma,“ sagði Bessent. Þá væri jafn­framt tryggt að ekk­ert ríki eða ein­stak­ling­ur sem hefði fjár­magnað eða stutt við inn­rás Rússa myndi græða á end­ur­reisn lands­ins.

Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna.
Scott Bessent, fjár­málaráðherra Banda­ríkj­anna. AFP/​Mandel Ngan

Denís Shmí­hal, for­sæt­is­ráðherra Úkraínu, sagði fyrr um dag­inn að sam­komu­lagið, sem þá átti eft­ir að und­ir­rita, væri gott og báðum ríkj­um til hags­bóta. Sagði hann að sam­komu­lagið fæli í sér stofn­un fjár­fest­inga­sjóðs sem væri und­ir jafnri stjórn beggja ríkja. Þá héldi Úkraína öll­um yf­ir­ráðum yfir jarðvegi, innviðum og nátt­úru­auðlind­um sín­um. 

Trump Banda­ríkja­for­seti sagði á rík­is­stjórn­ar­fundi fyrr í kvöld að sam­komu­lagið fæli í sér skuld­bind­ingu Banda­ríkja­manna gagn­vart Úkraínu, en ekki eru veitt­ar bein­ar trygg­ing­ar á ör­yggi lands­ins í því. Sagðist Trump þó telja að nær­vera Banda­ríkja­manna myndi halda þeim sem vildu Úkraínu­mönn­um illt fjarri. 

mbl.is