Mannskæðar árásir á báða bóga í nótt

Úkraínustríðið | 1. maí 2025

Mannskæðar árásir á báða bóga í nótt

Sjö létust í drónaárásum Úkraínumanna í nótt og tveir létust í drónaárásum Rússa.

Mannskæðar árásir á báða bóga í nótt

Úkraínustríðið | 1. maí 2025

Úkraínskir slökkviliðsmenn slökkva elda í kjölfar árásar Rússa.
Úkraínskir slökkviliðsmenn slökkva elda í kjölfar árásar Rússa. AFP/Neyðarþjónusta Úkraínu

Sjö lét­ust í dróna­árás­um Úkraínu­manna í nótt og tveir lét­ust í dróna­árás­um Rússa.

Sjö lét­ust í dróna­árás­um Úkraínu­manna í nótt og tveir lét­ust í dróna­árás­um Rússa.

Úkraínu­menn gerðu árás á markað í bæn­um Oles­hky sem er her­num­inn af Rúss­um í Ker­son-héraði í suður­hluta Úkraínu.

„Úkraínski her­inn gerði stór­fellda árás með FPV-drón­um á al­menna borg­ara.... Að minnsta kosti sjö manns hafa lát­ist og yfir 20 særst,“ skrifaði Vla­dimír Saldo, lepp­stjóri Rússa í Ker­son-héraði, á Tel­egram.

Rúss­ar drápu tvo

Dróna­árás frá Rúss­um í nótt drap að minnsta kosti tvo og særði 15 aðra á íbúðasvæði í borg­inni Odesa, sam­kvæmt neyðarþjón­ustu Úkraínu.

„Því miður lét­ust tveir sam­kvæmt bráðabirgðaupp­lýs­ing­um og 15 til viðbót­ar særðust,“ sagði neyðarþjón­usta Úkraínu á Tel­egram.

Árás­inni var lýst sem „gríðarlegri“ og sagt var að há­hýsi, ein­býl­is­hús, stór­markaður, skóli og bíl­ar hefðu skemmst.

mbl.is