Ítrekað var búið að vara við byssumanni sem grunaður er um að hafa haldið ferðamanni í gíslingu í nokkrar klukkustundir. Maðurinn sat í fangelsi þar til um miðjan september á síðasta. Hann er með fjölda dóma á bakinu og hefur m.a. áður hlotið dóm fyrir nauðgun og frelsissviptingu.

Maðurinn fékk ekki reynslulausn vegna veikinda sinna heldur sat hann af sér allan dóminn. Í fangelsinu var hann langtímum saman í öryggisvistun og einangrun.
Þegar afplánun lauk sendu fangelsismálayfirvöld erindi á stjórnvöld þar sem bent var á að æskilegt væri að finna sértækt úrræði fyrir þennan einstakling.
Ráðuneytin höfðu svo samband við Reykjavíkurborg þar sem beðið var um að finna úrræði fyrir einstaklinginn. Mál manna er að félagsþjónustan sé illa í stakk búin til þess að útvega úrræði fyrir menn sem geta talist hættulegir eða veikir líkt og tilfellið er í máli byssumannsins.
Birgir Jónasson fangelsismálastjóri segir að dæmi séu um að varað sé við mönnum þegar þeir ljúka afplánun.
„Án þess að tjá sig um einstök mál þá er ljóst að við höfum áhyggjur af vissum einstaklingum sem eru í veikri stöðu og við höfum látið viðeigandi yfirvöld vita upp á að hægt sé að vera með utanumhald um þessa einstaklinga. Því það skortir skýr úrræði og stuðning,“ segir Birgir.
Byssumaðurinn glímir m.a. við þroskaskerðingu. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga, segir að ítrekað hafi varað við manninum. Meðal annars gerði hann það í viðtali á mbl.is í október á síðasta ári.
„Við vorum að lengi að undirbúa það með yfirvöldum að þessi maður myndi losna úr fangelsi. En svo þegar kom að því að maðurinn losnaði þá var eiginlega ekkert kerfi sem greip hann. Nú losnar þessi maður væntanlega brátt úr gæsluvarðhaldi og hvað tekur þá við? Hann hættir ekki að verða veikur á einni nóttu og þarf þann stuðning sem þarf og það þarf að undirbúa. Þetta er ekki maður sem þarf að loka inni í öryggisvistun eða einangrun. Hann þarf annars konar úrræði.“
Mál mannsins sem upp er komið er að minnsta kosti hið þriðja sem fram hefur komið þar sem opinber kerfi hafa vitað af hættu af mönnum. Þannig er maður sem grunaður er um að hafa myrt móður sína í Breiðholti, Alfreð Erling Þórðarson sem var úrskurðaður ósakhæfur eftir að hafa drepið hjón í Neskaupstað og byssumaðurinn í gær allt menn sem opinber kerfi gátu ekki haldið utan um.
Í gangi er vinna þvert á ráðuneyti sem miðar að því að finna úrræði fyrir einstaklinga sem ekki eru hæfir til að vera í samfélaginu. Til að byrja með verður það úrræði á Kleppi.