Öryggisapp frítt á strandveiðum

Öryggi sjófarenda | 2. maí 2025

Öryggisapp frítt á strandveiðum

Smáforritið Agga, á vegum nýsköpunarfyrirtækisins Alda Öryggi, býðst íslenskum smábátasjómönnum þeim að kostnaðarlausu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Um er að ræða sérhannað öryggisstjórnunarkerfi, sem nútímavæðir, auðveldar og einfaldar allt utanumhald öryggismála smábáta. Forritið heldur öllum upplýsingum er varðar öryggismál bátsins á einum stað.

Öryggisapp frítt á strandveiðum

Öryggi sjófarenda | 2. maí 2025

Smáforritið Aggan er öryggisstjórnunarkerfi sem smábátasjómenn geta nálgast endurgjaldslaust.
Smáforritið Aggan er öryggisstjórnunarkerfi sem smábátasjómenn geta nálgast endurgjaldslaust. Samsett mynd

Smá­for­ritið Agga, á veg­um ný­sköp­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Alda Öryggi, býðst ís­lensk­um smá­báta­sjó­mönn­um þeim að kostnaðarlausu, að því er fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu. Um er að ræða sér­hannað ör­ygg­is­stjórn­un­ar­kerfi, sem nú­tíma­væðir, auðveld­ar og ein­fald­ar allt ut­an­um­hald ör­ygg­is­mála smá­báta. For­ritið held­ur öll­um upp­lýs­ing­um er varðar ör­ygg­is­mál báts­ins á ein­um stað.

Smá­for­ritið Agga, á veg­um ný­sköp­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Alda Öryggi, býðst ís­lensk­um smá­báta­sjó­mönn­um þeim að kostnaðarlausu, að því er fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu. Um er að ræða sér­hannað ör­ygg­is­stjórn­un­ar­kerfi, sem nú­tíma­væðir, auðveld­ar og ein­fald­ar allt ut­an­um­hald ör­ygg­is­mála smá­báta. For­ritið held­ur öll­um upp­lýs­ing­um er varðar ör­ygg­is­mál báts­ins á ein­um stað.

„Nú eru leyfðir fleiri veiðidag­ar og má því bú­ast við auk­inni sjó­sókn á strand­veiðunum. Til að tryggja ör­yggi sem best er mik­il­vægt að smá­báta­sjó­menn fram­kvæmi eig­in skoðanir á bátn­um og búnaði hans. Agga auðveld­ar þá vinnu alla og leiðir sjó­menn í gegn­um allt það sem mik­il­vægt er að at­huga og hafa í huga hvað ör­yggi þeirra varðar. Í smá­for­rit­inu eru gátlist­ar sem leiða sjó­menn í gegn­um eig­in skoðun og áhættumat á ástandi og ör­yggi báts­ins. Gátlist­arn­ir eru gerðir af Lands­sam­bandi smá­báta­eig­enda, Sam­göngu­stofu og Slysa­varna­skóla sjó­manna,“ seg­ir í til­kynn­ingu Öldu ör­yggi sem held­ur smá­for­rit­inu úti.

Í Ögg­unni geta sjó­menn skoðað ör­ygg­is­fræðslu til upp­rifj­un­ar og fram­kvæmt nýliðafræðslu. Sömu­leiðis geta smá­báta­sjó­menn sinnt lög­bund­inni til­kynn­ing­ar­skyldu í tengsl­um við sjó­at­vik eins og vél­ar­bil­un, strand, eld um borð eða slys á sjó­mönn­um í AT­VIK-sjó­menn gengn­um smá­for­ritið, en til­kynn­ing­arn­ar ber­ast  beint til Rann­sókn­ar­nefnd­ar sam­göngu­slysa.

„Agga er frítt fyr­ir alla smá­báta­sjó­menn og er fá­an­legt á App Store og Google Play. Sjó­menn þurfa bara að sækja appið, ný­skrá sig og geta þá strax haf­ist handa við eig­in skoðanir og áhættumat til að tryggja að þeir séu til­bún­ir og ör­ugg­ir fyr­ir kom­andi veiðitíma­bil,# seg­ir í til­kynnign­unni.

Hægt er að fá leiðsögn um notk­un­ina og nálg­ast nán­ari upp­lýs­ing­ar á heimasíðunni agga.is.

mbl.is