Víðar hörbuxur verða út um allt í sumar, stíliseraðar með lágum látlausum hælaskóm, strigaskóm eða sandölum. Kosturinn við þessa flík er þægindin því þær eru nánast eins og náttbuxur. Buxurnar er hægt að nota við afslappaðri tilefni og helst þegar sólin skín.

Buxur sem þessar passa vel við skyrtu í sama efni og lit, litla stuttermaboli og töff sólgleraugu. Flestir litir ganga upp í þessum stíl en í verslunum núna er mikið af ljósbrúnum, hvítum, ólífugrænum og ljósbláum lit.
Hörefni fylgja margir kostir. Það er sterkt efni og þornar hraðar en bómull. Það er mjög oft notað við sumarfatnað vegna þess hversu vel það andar. Hör vex hægar en bómull og er þess vegna dýrara efni en einnig vegna þess að það er erfiðara að vefa það. Það er mjög mikið til af flíkum í dag úr hörblöndu og er því þá oft blandað við bómull eða önnur gerviefni. Hör krumpast en þegar hör á í hlut þykir það ekki galli heldur eykur við afslappað útlit flíkinnar.