„Þetta verða ótrúlega spennandi tímar“

„Þetta verða ótrúlega spennandi tímar“

Nýkjörinn forsætisráðherra Kanada, Mark Carney, hefur gefið út að hann muni hitta Donald Trump Bandaríkjaforseta í Washington á þriðjudag.

„Þetta verða ótrúlega spennandi tímar“

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 2. maí 2025

Mark Carney, nýkjörinn forsætisráðherra Kanada.
Mark Carney, nýkjörinn forsætisráðherra Kanada. AFP

Ný­kjör­inn for­sæt­is­ráðherra Kan­ada, Mark Car­ney, hef­ur gefið út að hann muni hitta Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seta í Washingt­on á þriðju­dag.

Ný­kjör­inn for­sæt­is­ráðherra Kan­ada, Mark Car­ney, hef­ur gefið út að hann muni hitta Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seta í Washingt­on á þriðju­dag.

Þetta kom fram í máli Car­ney á blaðamanna­fundi fyrr í dag en þar sagði hann að á fund­in­um með Trump muni hann leggja áherslu á framtíð viðskipta- og ör­ygg­is­sam­bands þjóðanna.

Á blaðamanna­fund­in­um lofaði Car­ney sömu­leiðis að koma af stað mestu um­bótaaðgerðum fyr­ir kanadísk­an efna­hag síðan frá lok­um seinni heims­styrj­ald­ar­inn­ar.

„Þetta verða ótrú­lega spenn­andi tím­ar þegar við tök­um stjórn­völ­in á efna­hags­leg­um ör­lög­um okk­ar,“ sagði Car­ney við blaðamenn.

mbl.is