Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir fjölgun erlendra afplánunarfanga á Íslandi vera áhyggjuefni.
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir fjölgun erlendra afplánunarfanga á Íslandi vera áhyggjuefni.
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir fjölgun erlendra afplánunarfanga á Íslandi vera áhyggjuefni.
Erlendir ríkisborgarar voru þriðjungur afplánunarfanga á Íslandi árið 2024, samkvæmt svörum Fangelsismálastofnunar við fyrirspurn mbl.is, en árið 2019 voru þeir 19% af afplánunarföngum Íslands.
Er þessi þróun áhyggjuefni?
„Já, þróunin er sannarlega áhyggjuefni og ég er algjörlega ósammála fulltrúum Viðreisnar, hvort sem það eru þingmenn eða ráðherra málaflokksins, sem segja að við eigum alls ekki að vera ræða þessi mál með tilliti til þess hvaðan fólk kemur,“ segir Diljá Mist í Dagmálum.
Er Diljá meðal annars að vísa í orð Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra sem sagði á Bylgjunni fyrr í vikunni:
„Það á auðvitað aldrei að tala um þetta með þeim hætti að útlendingar séu eitthvert sérstakt vandamál varðandi þá staðreynd að menn brjóti af sér.“
Í þættinum ræða Diljá og Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, um útlendingamál í víðum skilningi.
Diljá segir mikilvægt að beina sjónum að því af hverju það er svona hátt hlutfall útlendinga sem afplána dóma eða sæta gæsluvarðhaldi hér á Íslandi.
Hún vill að íslenska ríkið nýti allar sínar heimildir til að senda erlenda afbrotamenn til sinna heimaríkja og nefnir að Þorbjörg Sigríður hafi gefið það út, í svari við fyrirspurn Diljár á Alþingi, að hún sé hlynnt því.
En Diljá segir einnig hægt sé að horfa til Danmerkur sem hefur gert samning við Kósóvó um að hýsa allt að 300 hundruð erlenda fanga sem hlotið hafa dóm í Danmörku.
Teljið þið einhverjar líkur á því að íslenska ríkið sé að fara semja við erlent ríki um að hýsa fanga fyrir okkur?
„Það þarf bara að ganga betur á ráðherrann með það. Hún [Þorbjörg] að minnsta kosti opnaði fyrir það, virtist ekki vera neikvæð hvað það varðar. Hún auðvitað sér, eins og við, að það er ótækt að íslenskir skattgreiðendur beri kostnað af þessum gríðarlega fjölda erlendra afbrotamanna,“ segir Diljá Mist.
Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að nálgast viðtalið við Diljá og Bergþór í heild sinni.