Trump vill vígjast til páfadóms

Trump vill vígjast til páfadóms

Gamansemi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á kostnað páfadómsins ríður ekki við einteyming og segja bandarískir og annarra þjóða fjölmiðlar nú frá því er forsetinn birti af sér gervigreindarsniðna mynd í embættisklæðum páfa á samfélagsmiðli sínum Truth Social í gær.

Trump vill vígjast til páfadóms

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 3. maí 2025

Svona sér gervigreindarvölvan alvitra Donald Trump fyrir sér sem páfa …
Svona sér gervigreindarvölvan alvitra Donald Trump fyrir sér sem páfa og lætur sér í léttu rúmi liggja þótt forsetinn teljist ekki kjörgengur til páfadóms. Til þess þyrfti hann að vera einn 252 starfandi kardínála innan kardínálaráðs Vatíkansins. Trump uppfyllir hins vegar hitt skilyrðið um að hafa ekki náð 80 ára aldri við fráfall síðasta páfa. Ljósmynd/Truth Platform

Gam­an­semi Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta á kostnað páfa­dóms­ins ríður ekki við einteym­ing og segja banda­rísk­ir og annarra þjóða fjöl­miðlar nú frá því er for­set­inn birti af sér gervi­greind­arsniðna mynd í embættisklæðum páfa á sam­fé­lags­miðli sín­um Truth Social í gær.

Gam­an­semi Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta á kostnað páfa­dóms­ins ríður ekki við einteym­ing og segja banda­rísk­ir og annarra þjóða fjöl­miðlar nú frá því er for­set­inn birti af sér gervi­greind­arsniðna mynd í embættisklæðum páfa á sam­fé­lags­miðli sín­um Truth Social í gær.

Fylg­ir mynd­birt­ing­in í kjöl­far þeirr­ar yf­ir­lýs­ing­ar Trumps í vik­unni að hann gæti vel hugsað sér að gegna hinu æðsta embætti kaþólska kirkju­veld­is­ins, en það tjáði hann frétta­mönn­um með þeim orðum að hann vildi verða næsti páfi, þegar þeir inntu hann eft­ir því hvern hann gæti helst hugsað sér  sem eft­ir­mann Frans páfa sem í apríl lést í hárri elli eft­ir al­var­leg­an krank­leika.

Mynd­in sem Trump birti í gær ber hefðbund­in merki þess að vera runn­in und­an rifj­um gervi­greind­ar­tækni og sýn­ir for­set­ann benda fingri til him­ins í páfa­kufli með mít­ur á höfði, sem hatt­ur páfa kall­ast, og gull­inn kross um háls­inn.

Frans gagn­rýndi vegg Trumps

Í fram­haldi svars síns við spurn­ingu fjöl­miðlamanna dró for­set­inn þó í land með eig­in páfa­dóm, en sagði að í New York væri starf­andi kardí­náli sem hon­um þætti „mjög góður“ og virt­ist þar eiga við hinn íhalds­sama Timot­hy Dol­an erki­bisk­up sem skorið hef­ur upp her­ör gegn fóst­ur­eyðing­um í þeirri umræðu sem verið hef­ur um þær síðustu miss­eri.

Ekki er langt síðan Trump var við út­för páfa sem varð til­efni fyrstu ut­an­lands­ferðar hans frá embættis­tök­unni í janú­ar. Um þess­ar mund­ir ját­ar um fimmt­ung­ur Banda­ríkja­manna kaþólska trú og benti kosn­inga­töl­fræði í kjöl­far for­seta­kosn­ing­anna í nóv­em­ber til þess að Trump hefði hlotið at­kvæði um það bil 60 pró­senta þess hóps.

Hafði Frans páfi heit­inn þó uppi gagn­rýni í garð Trumps, svo sem í fyrra fram­boði hans árið 2016 þegar áber­andi kosn­inga­mál for­setafram­bjóðand­ans sner­ist um að reisa varn­ar­múr mik­inn á landa­mær­um Banda­ríkj­anna og Mexí­kó til að tálma ólög­leg­um inn­flytj­end­um för sína norður yfir landa­mær­in og inn í Banda­rík­in.

„Sá sem ein­göngu vill reisa veggi í stað þess að byggja brýr, sama hver hann er, get­ur ekki tal­ist krist­inn,“ sagði Frans um Trump og vegg hans, en senn líður að því að kardí­nál­ar Páfag­arðs kjósi næsta páfa úr eig­in röðum, koma þeir sam­an í Sist­ínsku kap­ell­unni á miðviku­dag­inn, 7. maí, til að ráða ráðum sín­um.

600 ára hefð kjörgeng­is

Telj­ast 252 kardí­nál­ar nú kjörgeng­ir þótt tveir þeirra muni ekki gefa kost á sér vegna heilsu­fars síns, en ekki upp­fylla þó all­ir starf­andi kardí­nál­ar hæfis­skil­yrði til páfa­kjörs þar sem eitt kjörgeng­is­skil­yrða er að kardí­náli hafi ekki náð full­um 80 ára aldri á dán­ar­dægri síðasta páfa.

Um 600 ára skeið hef­ur sá hátt­ur­inn verið á að kardí­nál­ar kaþólsku kirkj­unn­ar velj eft­ir­mann páfa úr sín­um röðum og því ólík­legt að breyt­ing verði á fyr­ir þingið á miðviku­dag. Kosn­ingaum­ferðirn­ar á sam­kom­unni eru nokkr­ar og kjósa kardí­nál­ar með því að rita nafn æski­legs páfa á blað.

Eru kjör­seðlar þess­ir brennd­ir eft­ir því sem um­ferðunum lýk­ur og fækk­ar í hópi kjörgengra kandí­data til páfa­dóms. Til að gefa al­menn­ingi, sem jafn­an fyll­ir Pét­urs­torgið meðan á kjör­fundi stend­ur, hug­mynd um fram­vindu mála brenna kardí­nál­arn­ir til þess gerðan efnivið í eld­stó kap­ell­unn­ar og stíg­ur svart­ur reyk­ur upp af skor­steini henn­ar til merk­is um að fund­ur­inn hafi ekki kom­ist að niður­stöðu, en sé reyk­ur­inn hvít­ur er hann tákn um að nýr páfi hafi verið kjör­inn.

mbl.is