Ísraelsmenn greindu frá því í dag að eldflaug frá Jemen hefði hæft skotmark nærri aðalflugvelli landsins. Árásin leiddi til þess að flugumferð var stöðvuð um stund. Ísraelsmenn hafa hótað hefndaraðgerðum.

Hútar hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni og sögðu hana vera til stuðnings Palestínumönnum á Gasa. Í yfirlýsingu þeirra sagði að árásin hafi verið árangursrík.
Lögregla greindi frá árásinni sem varð nærri Ben Gurion-alþjóðaflugvellinum í Tel Avív. Herinn gerði nokkrar tilraunir til að granda eldflauginni.
Í myndskeiði sem ísraelska lögreglan birti sést gígur sem hafði myndast og í fjarska sást flugstjórnarturn flugvallarins. Óvíst er hvort eldflaugin eða loftvarnir Ísraelsmanna mynduðu gíginn.
Blaðamenn AFP heyrðu sprengingar nærri Jerúsalem og flugvellinum í Tel Avív. Flugumferð er nú hafin á ný.
Israel Katz varnarmálaráðherra hefur hótað hörðum viðbrögðum. „Hver sem ræðst á okkur, við munum ráðast á þá með sjö sinnum meiri krafti.“