Anne Hathaway sögð hafa lagst undir hnífinn

Poppkúltúr | 6. maí 2025

Anne Hathaway sögð hafa lagst undir hnífinn

Bandaríska verðlaunaleikkonan Anne Hathaway hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir unglegt útlit sitt.

Anne Hathaway sögð hafa lagst undir hnífinn

Poppkúltúr | 6. maí 2025

Anne Hathaway var meðal þeirra sem mættu á Met Gala-hátíðina …
Anne Hathaway var meðal þeirra sem mættu á Met Gala-hátíðina í New York á mánudagskvöldið. Ljósmynd/AFP

Banda­ríska verðlauna­leik­kon­an Anne Hat­haway hef­ur vakið mikla at­hygli und­an­farið fyr­ir ung­legt út­lit sitt.

Banda­ríska verðlauna­leik­kon­an Anne Hat­haway hef­ur vakið mikla at­hygli und­an­farið fyr­ir ung­legt út­lit sitt.

Hat­haway þykir hafa tekið mikl­um út­lits­breyt­ing­um und­an­farið og telja sum­ir að hún hafi lagst und­ir hníf­inn og farið í enn­is- og/​eða and­lits­lyft­ingu ásamt því að vera orðin áskrif­andi að fylli­efn­um.

Leik­kon­an, sem er 42 ára göm­ul, vakti, eins og við mátti bú­ast, ómælda at­hygli á Met Gala-hátíðinni á mánu­dags­kvöldið, en það sem vakti hvað mesta at­hygli viðstaddra var mjög svo ung­legt og flekk­laust út­lit henn­ar.

Hat­haway, einna þekkt­ust fyr­ir hlut­verk sín í kvik­mynd­um á borð við Princess Di­aries, Les Miséra­bles og The Devil We­ars Pra­de, var þó stór­glæsi­leg í hönn­un frá venesú­elska tísku­hönnuðinum Carol­inu Her­rera, með hárið í háu tagli og háls­men sem minnti marga á sjálft Tit­anic-menið, The Heart of the Oce­an

Þrátt fyr­ir það þá beind­ist at­hygl­in öll að and­liti leik­kon­unn­ar sem virt­ist strekkt­ara en oft áður.

Leikkonan er sögð hafa lagst undir hnífinn.
Leik­kon­an er sögð hafa lagst und­ir hníf­inn. Ljós­mynd/​AFP
mbl.is